Tíska og hönnun

Fjögur íslensk verk verðlaunuð á alþjóðlegu ADCE verðlaununum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Verkefnin fjögur sem nældu sér í ADCE verðlaun í ár.
Verkefnin fjögur sem nældu sér í ADCE verðlaun í ár. FÍT

Árlega verðlaunar Art Directors Club Europe það besta í grafískri hönnun. Íslendingar sendu inn þrettán verk í keppnina í ár en fjögur verkefni hlutu fimm verðlaun, tvö gullverðlaun, tvö silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.

FÍT, Félag íslenskra teiknara er aðili að ADCE en fremstu verk hvers lands eru send í keppnina sem svo eru dæmd af 53 fagaðilum frá 19 löndum í Evrópu. Verðlaunin voru veitt í gær.

Íslendingar áttu tvo dómnefndarfulltrúa í keppninni í ár en það voru þær Agga Jónsdóttir grafískur hönnuður hjá Pipar/TBWA og Elsa Nielsen grafískur hönnuður hjá Kontor Reykjavík. Samanlagt hafa þær margra ára reynslu af faginu. Hér fyrir neðan má lesa meira um verkin fimm sem hlutu verðlaun í gær. 

Room 4.1 LIVE hlaut bæði gull- og silfurverðlaun. Konur sem kjósa — Aldarsaga hlaut einnig gullverðlaun. Auglýsingaherferðin Allir úr hlaut silfurverðlaun og verkefnið Íslenska landsliðið í knattspyrnu fékk brons. 

Room 4.1 LIVE — Craft Picture, gold og Digital Screens, Silver

Brandenburg, auglýsingastofa: Hönnuðir: Hrafn Gunnarsson, Gísli Arnarson, Guðmundur Pétursson og Þorvaldur Sævar Gunnarsson. Ljósmynd: Svenni Speight

ROOM 4.1 Live er eitthvað allt annað og meira en hefðbundið leikverk. Í þessari fordæmalausu sýningarupplifun urðu áhorfendur vitni að brengluðum og martraðarkenndum spíral — veruleika þeirra sem eru á barmi vitfirringar. Áskorun hönnuða fólst í að koma þessari óendanlegu hringrás angistar til skila á hefðbundnum markaðsmiðlum. Í því skyni var hannað og byggt hreyfanlegt 360° svið og ljósmyndaðar senur úr verkinu. Saman tók efnið á sig mynd óhugnanlegar endaleysu.

Konur sem kjósa — Aldarsaga — Editorial design, gold

Hildigunnur Gunnarsdóttir og Snæfríð Þorsteins

Bók um íslenska kvenkjósendur í eina öld. Verk byggir á áralöngum rannsóknum fjögurra fræðimanna. Titill vísar til kosningaréttarins en einnig til þess hvernig konur sköpuðu sér rými til að móta eigið líf og samfélag. Baráttu fyrir hlutdeild í stjórn lands og samfélags. Frelsi til að ráða menntun sinni og atvinnu, barneignum og ástarsamböndum. Bók um sveitakonur, hvunndagshetjur, fiskvinnslukonur, heimskonur, húsfreyjur, listakonur, baráttukonur og hugsuði.

Við hönnun var leitast við að gera úr mjúka bók til handfjötlunar. Bók sem annars vegar miðlar fræðilegum texta og glæðir ótal áður ósagðar sögur kvenna lífi með styttri frásögnum. En einnig bók sem skerpir aldarsögu valdeflingar í gegnum vel valið myndmál og sérstöðu í útliti. Leitast við að skapa bók jafnt fyrir fræðimenn sem almenning. Bók til að lesa og fletta, strjúka, íhuga, grípa í og lesa aftur.

Allir úr — TV/Cinema Commerical, Silver

Brandenburg, auglýsingastofa. Hönnuðir: Jón Ari Helgason, Dóra Haraldsdóttir, Arnar Halldórsson, Jón Ingi Einarsson, Jón Páll Halldórsson og Þorvaldur Sævar Gunnarsson

Stefna Nova er að standa fyrir fjölbreytileika og sýna okkur öll eins og við erum án staðlaðra glansmynda. Allir úr! verkefnið var tilvalið til að undirstrika þessa stefnu og opna á samtalið um líkamsímynd og virðingu.

Markmiðið var að auglýsa e-sim Úrlausn Nova sem gerir viðskiptavinum kleift að skilja símann eftir heima og vera eingöngu með snjallúr. Hinsvegar að setja fókus á líkamsvirðingu og sjálfsmynd Íslendinga sem hluta af samfélagsábyrgð Nova.

Íslenska landsliðið í knattspyrnu — Logotype, Bronze

Brandenburg, auglýsingastofa. Hönnuðir: Hrafn Gunnarsson, Dóri Andrésson og Þorgeir K. Blöndal

Nýtt merki íslenska landsliðsins er tákn um óbilandi samstöðu, innblásið af arfleifð og mótandi sögu, sem fléttar saman landvættir Íslands á nútímalegan máta.

Merkið er margslungið en skýrt og byggir á fyrri skjaldarmerkjum, en stendur eitt og sér sem auðkennandi tákn landsliða Íslands í knattspyrnu.

Hér er hægt að lesa allt um verðlaunaverk ADCE






Fleiri fréttir

Sjá meira


×