Arnór á bekknum þegar Venezia tapaði fyrir Inter

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. vísir/Getty

Enginn Íslendinganna fékk að spreyta sig gegn Ítalíumeisturum Internazionale í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fjölmargir íslenskir knattspyrnumenn eru á mála hjá Venezia sem eru nýliðar í ítölsku úrvalsdeildinni.

Arnór Sigurðsson var eini Íslendingurinn í leikmannahópi liðsins í kvöld.

Hann horfði á liðsfélaga sína há hetjulega baráttu gegn meisturunum en leiknum lauk með sigri Inter í miklum baráttuleik.

Tyrkneski miðjumaðurinn Hakan Calhanoglu gerði fyrra mark Inter eftir rúmlega hálftíma leik og var svo ekkert skorað fyrr en á 95.mínútu þegar Lautaro Martinez gulltryggði sigur gestanna með marki úr vítaspyrnu.

Inter styrkti þar með stöðu sína í 3.sæti deildarinnar en liðið hefur einu stigi minna en topplið Napoli. Venezia í 15.sæti með fimmtán stig eftir fjórtán leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira