Tíska og hönnun

Sigurður, Matthías og Gabríel hljóta Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fyrir Hjaltalín - ∞

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hjaltalín - ∞ hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands í dag.
Hjaltalín - ∞ hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands í dag.

 Hönnunarverðlaun Íslands 2021 voru afhent með hátíðlegum hætti í Grósku rétt í þessu.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti hönnuðinum Sigurðu Oddssyni, myndhöggvaranum Matthíasi Rúnari Sigurðssyni og þrívíddarhönnuðinum Gabríel Benedikt Bachmann Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fyrir verkefnið Hjaltalín - ∞.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem Blóð stúdíó gerði um verðlaunaverkefnið.

Klippa: Sigurvegari Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021

Frá dómnefnd:

„Platan „∞“ er tímalaust tímamótaverk í myndrænni og þrívíðri nálgun. Í hönnun fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar Hjaltalín veltir Sigurður Oddsson, grafískur hönnuður og listrænn stjórnandi verksins, upp hugmyndum um varanleika og hlutgervingu tónlistar í samtali og samvinnu við myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann.

Ferlið við tónsmíðar og plötuútgáfu er hugræn meðganga, hugarfóstur tónlistarfólks sem í ferlinu tekur á sig mynd, vex og dafnar. Útgáfa plötunnar er svo fæðingin, tímamót og afurðin endanleg. Óhagganleg og eilíf, meitluð í stein.

Frá hönnunarferlinublóð stúdíó

Í meðförum teymisins er hljóðheimur sköpunar hlutgerður sem úlfabarn, höggmynd úr basalti sem er jafnframt teiknuð og vistuð í þrívíðu stafrænu formi til þess að hámarka endingartíma og auðvelda birtingarmynd þess á ólíkum miðlum. Úlfabarninu er ætlaður endanlegur hvílustaður hjá Úlfarsfelli, sem þrívíður minnisvarði um tilvist útgáfunnar, sem nær langt umfram þá sem tíðkast hefur í plötuútgáfu til þessa.

Myndræn framsetning er óaðfinnanleg. Samspil ljóss og skugga skapar einstaka kyrrð og hlýju. Stund frosin í tíma. Leturval er vel við hæfi og táknróf plötunnar vísar smekklega í gyllta plötu Voyager geimfarsins sem er flöskuskeyti mannkyns út fyrir okkar sólkerfi. Það er mat dómnefndar Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021 að hönnun plötuumslags og heildarútfærsla „∞“ sé einstaklega sterkt heildrænt verk og metnaðarfullur minnisvarði um samspil tónlistar og hönnunar til framtíðar.“

Frá gerð verkefnisins.blóð stúdíó

Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fóru fram í Grósku við hátíðlega athöfn fyrir fullum sal gesta. Kynnir kvöldsins var Guðrún Sóley Gestsdóttir, fjölmiðlakona en fyrr um daginn fór fram samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun undir stjórn Hrundar Gunnsteinsdóttur, framkvæmdastjóri Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni.

Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Í dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2021 sátu:

  • María Kristín Jónsdóttir/Sigríður Sigurjónsdóttir, formenn, Hönnunarsafn Íslands
  • Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ 
  • Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A 
  • Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI
  • Katarina Siltavuori, framkvæmdastjóri Archinfo í Finnlandi. MH&A
  • Ragna Fróðadóttir, textíl- og fatahönnuður, og framkvæmdastjóri Edelkoort Inc. MH&A

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands , Listaháskóla Íslands , Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins .


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×