Neytendur

Ekki til­efni til að­gerða vegna deilu um auð­kennið Norður­hús

Atli Ísleifsson skrifar
Ákvörðun Neytendastofu í málinu var birt á síðasta ári.
Ákvörðun Neytendastofu í málinu var birt á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu í deilu tveggja félaga um notkun á auðkenninu Norðurhús á vefsíðunni nordurhus.is og á Facebook-síðunni facebook.com/nordurhus.

Þrátt fyrir líkindi telur nefndin ekki vera ástæðu til aðgerða af hálfu yfirvalda, en auðkennið í notkun kæranda sé nú einkum notað í tengslum við innflutning smásöluvara, meðal annars vara tengdum rafrettunotkun. Starfsemi „Norður Húss“ lýtur á hinn bóginn að sölu færanlegra timburklæddra sumarhúsa.

Kvörtun barst á sínum tíma Neytendastofu vegna notkunar á auðkenninu þar sem fram kom að Norðurhús hafi átt skráð og notað firmaheitið frá árinu 1999. Auðkennið væri hins vegar ítrekað notað á vefsíðunni nordurhus.is og umræddri facebook síðu án þess að nokkuð komi fram sem aðgreini það frá firmanafni Norðurhús.

Vildi kærandi meina að notkunin fæli í sér rugling eða möguleika á ruglingi þar sem að um orðrétta nýtingu á firmaheitinu væri að ræða.

Afar lík, en tvö orð

Áfrýjunarnefndin, og áður Neytendastofa, var hins vegar ekki á því. Þó sé hægt að fallast á að auðkennin „Norðurhús“ og „Norður Hús“, líkt og birtist á Facebook-síðunni, séu afar lík.

„Má í því samhengi nefna að auðkennin væru því allt að því eins ef þau væru notuð í auglýsingum á ljósvakamiðlum og þá sérstaklega í útvarpi. Þá er ljóst, að lénið www.nordurhus.is, sem áður var notað í starfsemi Norður Húss, var í þeim búningi í reynd sama auðkenni og auðkenni kæranda.

Á hinn bóginn lýtur mál þetta að notkun auðkennisins „Norður Hús“ á samnefndri Facebook síðu. Við samanburð á auðkenninu í þeim búningi og auðkenni kæranda eru myndlíkindi afar takmörkuð, en auðkenni kæranda er ýmist ritað „Norðurhús“ eða „NORÐURHÚS“ en auðkennið, sem kvartað er undan sem fyrr segir „Norður Hús“. Er þannig um tvö orð að ræða með bili á milli en ekki eitt samsett orð eins og í auðkenni kæranda,“ segir í útskurði nefndarinnar.

Líkindi með starfsemi félaganna afar lítil eða engin

Þar að auki telur nefndin að ekki verði framhjá því litið að líkindi með starfsemi aðilanna sé afar lítil eða engin. 

„Þótt takmarkaðra gagna njóti við um starfsemi kæranda frá skráningu firmaheitisins verður ekki annað ráðið en að auðkennið sé nú einkum notað í tengslum við innflutning smásöluvara, m.a. vara tengdum rafrettunotkun. Starfsemi Norður Húss lýtur á hinn bóginn að sölu færanlegra timburklæddra sumarhúsa. Aðilar starfa þannig á ólíkum mörkuðum og beina vöru og þjónustu að ólíkum markhópum. Verður því að teljast afar ólíklegt að hinn almenni neytandi rugli saman starfsemi kæranda og þeirri starfsemi sem fer fram undir merkinu Norður Hús.“

Í ljósi þessa og og einkum þeirra takmörkuðu notkunar á auðkenninu „Norður Hús“ sem um ræðir, verði áfrýjunarnefndin að fallast á þá niðurstöðu hinnar kærðu ákvörðunar að ekki sé ástæða til aðgerða í tilefni af kvörtun kæranda.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×