Kosningafrumvarp Demókrata stöðvað í þriðja sinn Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2021 23:25 Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins á blaðamannafundi á þriðjudaginn. Fyrir miðju má sjá Chuck Schumer, leiðtoga meirihlutans. AP/Andrew Harnik Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins gerðu í kvöld þriðju tilraunina til að greiða atkvæði um kosningafrumvarp þeirra og í þriðja sinn komu Repúblikanar í veg fyrir umræðu og atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Tveir þingmenn Demókrataflokksins eru undir miklum þrýstingi varðandi það að gera breytingar á reglum þingsins svo Repúblikanar gætu ekki stöðvað frumvarpið. Frumvarpið kallast á ensku „Freedom to vote act“ og myndi gera töluverðar breytingar á fyrirkomulagi kosninga í Bandaríkjunum. Það hefur tekið nokkrum breytingum frá því það var fyrst lagt fram í fulltrúadeildinni í mars. Það var samið í kjölfar árásar stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta, á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar. Fólkið réðst á þingið með því markmiði að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember í fyrra á grundvelli ítrekaðra ósannra yfirlýsinga Trumps og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað hann sigur. Gera fólki víða erfiðara að kjósa Í framhaldið af því og á grundvelli sömu innihaldslausu ásakana voru Repúblikanar í ríkisþingum víðsvegar um Bandaríkin að gera miklar breytingar á reglum um kosningar sem munu gera fólki erfiðara að taka þátt í kosningum og gefa stjórnmálamönnum aukin völd til að hafa áhrif á niðurstöður kosninga. Sérfræðingar segja aðgerðir Repúbliakna sérstaklega koma niður á kosningarétti þeldökkra Bandaríkjamanna. Sjá einnig: Takmarkanir repúblikana á kosningum fá grænt ljós Ásakanir Trumps og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra, hafa leitt til þess að stór hluti kjósenda Repúblikanaflokksins stendur í þeirri trú að svo sé. Það er þó Trump-liðar hafi ekki getað fært sannanir fyrir því og embættismenn og sérfræðingar segja það rangt. William Barr, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, gaf út í lok síðasta árs að engar vísbendingar lægju fyrir um að stórfellt kosningasvindl hefði átt sér stað. Í kjölfar þess versnaði samband hans og Trumps verulega og Barr endaði á því að hætta skömmu fyrir embættistöku Bidens. Sjá einnig: Vildi beita ráðuneytinu til að halda völdum eftir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti, hefur ítrekað haldið því fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra. Trump-liðum hefur ekki tekist að færa nokkrar sannanir fyrir þessum ásökunum.AP/Seth Wenig Fór fljótt í gegnum fulltrúadeildina Frumvarpið var fljótt samþykkt í fulltrúadeildinni en ekkert hefur gengið að koma því í gegnum öldungadeildina. Er það að miklu leyti vegna reglu sem kallast reglan um aukin meirihluta og snýr að málþófi. Nýjasta útgáfa frumvarpsins hefði töluvert minni áhrif en fyrsta útgáfa þess. Það sem frumvarpið myndi meðal annars gera er að leggja landslægar reglur varðandi framkvæmd kosninga í Bandaríkjunum, takmarka möguleika embættismanna til að teikna kjördæmi upp flokkum sínum í hag og auka gagnsæi varðandi framlög sem snúa að kosningum, svo opinbera þyrfti frá hverjum slík framlög komi. Frumvarpið á einnig að gera kjördag að frídegi í Bandaríkjunum. Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, sagði að þingmennirnir væru ekki hættir að reyna að verja kosningaréttinn. Baráttunni um „sálu Bandaríkjanna“ væri ekki lokið. Deilt um gamla reglu Demókratar gætu ekki verið með naumari meirihluta í öldungadeildinni. Hún skiptist 50-50 milli fylkinga og varaforsetinn, sem er Demókrati, ræður úrslitum. Til að samþykkja flest frumvörp í öldungadeildinni þarf hins vegar sextíu atkvæði vegna reglunnar um aukinn meirihluta. Reglan um aukinn meirihluta Reglan segir til um að þörf sé á 60 atkvæðum af hundrað fyrir flest frumvörp en á ensku kallast þessi regla „filibuster“. Hún felur í raun í sér að hvaða þingmaður sem er getur tafið störf þingsins með málþófi, nema minnst 60 þingmenn greiði atkvæði gegn því. Á árum áður þurftu þingmenn að standa í pontu og halda ræður til að stöðva störf þingsins með málþófi en því var breytt á þá leið að þingmenn þyrftu bara að lýsa því yfir að þeir ætluðu að tefja störf þingsins og ekki standa í pontu. Það þarf þó einungis 51 atkvæði til að fella regluna niður. Demókratar felldu regluna niður tímabundið þegar Repúblikanar stóðu í vegi margra sem Barack Obama hafði tilnefnt til fjölmargra opinberra embætta og Repúblikanar felldu niður regluna varðandi tilnefningu hæstaréttardómara í forsetatíð Trumps. Litlar líkur eru því á því að frumvarp Demókrata muni nokkurn tímann verða samþykkt af öldungadeildinni. Öldungadeildarþingmaðurinn Angus King, frá Maine, sem er sjálfstæður en fylgir Demókrataflokknum að mestu, lýsti því yfir í kvöld að hann væri ekki lengur mótfallinn því að fella niður regluna um aukinn meirihluta. „Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að lýðræðið sjálft er mikilvægar en allar reglur öldungadeildarinnar.“ Þetta sagði King samkvæmt AP fréttaveitunni. Hann ítrekaði þó að breytingar gætu bitið Demókrata í rassinn Þegar Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni. Allra augu beinast nú að tveimur þingmönnum Demókrataflokksins. Þeim Joe Manchin og Kyrsten Sinema frá Vestur-Virginíu og Arizona. Þau hafa bæði lýst því yfir að þau vilji ekki fella niður regluna um aukinn meirihluta. Sjá einnig: Skaut á tvo áhrifamikla Demókrata í öldungadeildinni Uppi eru hugmyndir um að gera takmarkaðar eða tímabundnar breytingar á reglunni svo hægt væri að koma þessu frumvarpi í gegn. Bæði Manchin og Sinema komu að því að semja frumvarpið sem Repúblikanar stöðvuðu í kvöld. Washington Post hefur eftir þingmönnum Repúblikanaflokksins að þeir hafi litlar áhyggjur af því að Manchin og Sinema muni láta undan þrýstingi flokksbræðra og systra sinna. Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Joe Biden Donald Trump Árás á bandaríska þinghúsið Tengdar fréttir Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur stefnt rannsóknarnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar áhlaupið á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans. 18. október 2021 23:31 Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. 16. október 2021 12:58 Demókratar í þröngri stöðu fá liðsauka frá repúblikönum Hópur repúblikana sem er andsnúinn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, ætlar að lýsa yfir stuðningi við nokkra sitjandi þingmenn demókrata sem sjá fram á erfiðan endurkjörsslag í þingkosningum á næsta ári. 14. október 2021 14:33 Sagði að án takmarkana á kjörsókn muni Repúblikanar tapa um árabil Öldungadeildarþingmaðurinn bandaríski Ted Cruz segir Demókrata ætla sér að veita milljónum ólöglegra innflytjenda, barnaníðingum og öðrum glæpamönnum kosningarétt. Þannig muni Demókratar tryggja yfirráð sínum í kosningum vestanhafs um árabil. 20. mars 2021 22:52 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira
Tveir þingmenn Demókrataflokksins eru undir miklum þrýstingi varðandi það að gera breytingar á reglum þingsins svo Repúblikanar gætu ekki stöðvað frumvarpið. Frumvarpið kallast á ensku „Freedom to vote act“ og myndi gera töluverðar breytingar á fyrirkomulagi kosninga í Bandaríkjunum. Það hefur tekið nokkrum breytingum frá því það var fyrst lagt fram í fulltrúadeildinni í mars. Það var samið í kjölfar árásar stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta, á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar. Fólkið réðst á þingið með því markmiði að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember í fyrra á grundvelli ítrekaðra ósannra yfirlýsinga Trumps og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað hann sigur. Gera fólki víða erfiðara að kjósa Í framhaldið af því og á grundvelli sömu innihaldslausu ásakana voru Repúblikanar í ríkisþingum víðsvegar um Bandaríkin að gera miklar breytingar á reglum um kosningar sem munu gera fólki erfiðara að taka þátt í kosningum og gefa stjórnmálamönnum aukin völd til að hafa áhrif á niðurstöður kosninga. Sérfræðingar segja aðgerðir Repúbliakna sérstaklega koma niður á kosningarétti þeldökkra Bandaríkjamanna. Sjá einnig: Takmarkanir repúblikana á kosningum fá grænt ljós Ásakanir Trumps og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra, hafa leitt til þess að stór hluti kjósenda Repúblikanaflokksins stendur í þeirri trú að svo sé. Það er þó Trump-liðar hafi ekki getað fært sannanir fyrir því og embættismenn og sérfræðingar segja það rangt. William Barr, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, gaf út í lok síðasta árs að engar vísbendingar lægju fyrir um að stórfellt kosningasvindl hefði átt sér stað. Í kjölfar þess versnaði samband hans og Trumps verulega og Barr endaði á því að hætta skömmu fyrir embættistöku Bidens. Sjá einnig: Vildi beita ráðuneytinu til að halda völdum eftir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti, hefur ítrekað haldið því fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra. Trump-liðum hefur ekki tekist að færa nokkrar sannanir fyrir þessum ásökunum.AP/Seth Wenig Fór fljótt í gegnum fulltrúadeildina Frumvarpið var fljótt samþykkt í fulltrúadeildinni en ekkert hefur gengið að koma því í gegnum öldungadeildina. Er það að miklu leyti vegna reglu sem kallast reglan um aukin meirihluta og snýr að málþófi. Nýjasta útgáfa frumvarpsins hefði töluvert minni áhrif en fyrsta útgáfa þess. Það sem frumvarpið myndi meðal annars gera er að leggja landslægar reglur varðandi framkvæmd kosninga í Bandaríkjunum, takmarka möguleika embættismanna til að teikna kjördæmi upp flokkum sínum í hag og auka gagnsæi varðandi framlög sem snúa að kosningum, svo opinbera þyrfti frá hverjum slík framlög komi. Frumvarpið á einnig að gera kjördag að frídegi í Bandaríkjunum. Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, sagði að þingmennirnir væru ekki hættir að reyna að verja kosningaréttinn. Baráttunni um „sálu Bandaríkjanna“ væri ekki lokið. Deilt um gamla reglu Demókratar gætu ekki verið með naumari meirihluta í öldungadeildinni. Hún skiptist 50-50 milli fylkinga og varaforsetinn, sem er Demókrati, ræður úrslitum. Til að samþykkja flest frumvörp í öldungadeildinni þarf hins vegar sextíu atkvæði vegna reglunnar um aukinn meirihluta. Reglan um aukinn meirihluta Reglan segir til um að þörf sé á 60 atkvæðum af hundrað fyrir flest frumvörp en á ensku kallast þessi regla „filibuster“. Hún felur í raun í sér að hvaða þingmaður sem er getur tafið störf þingsins með málþófi, nema minnst 60 þingmenn greiði atkvæði gegn því. Á árum áður þurftu þingmenn að standa í pontu og halda ræður til að stöðva störf þingsins með málþófi en því var breytt á þá leið að þingmenn þyrftu bara að lýsa því yfir að þeir ætluðu að tefja störf þingsins og ekki standa í pontu. Það þarf þó einungis 51 atkvæði til að fella regluna niður. Demókratar felldu regluna niður tímabundið þegar Repúblikanar stóðu í vegi margra sem Barack Obama hafði tilnefnt til fjölmargra opinberra embætta og Repúblikanar felldu niður regluna varðandi tilnefningu hæstaréttardómara í forsetatíð Trumps. Litlar líkur eru því á því að frumvarp Demókrata muni nokkurn tímann verða samþykkt af öldungadeildinni. Öldungadeildarþingmaðurinn Angus King, frá Maine, sem er sjálfstæður en fylgir Demókrataflokknum að mestu, lýsti því yfir í kvöld að hann væri ekki lengur mótfallinn því að fella niður regluna um aukinn meirihluta. „Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að lýðræðið sjálft er mikilvægar en allar reglur öldungadeildarinnar.“ Þetta sagði King samkvæmt AP fréttaveitunni. Hann ítrekaði þó að breytingar gætu bitið Demókrata í rassinn Þegar Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni. Allra augu beinast nú að tveimur þingmönnum Demókrataflokksins. Þeim Joe Manchin og Kyrsten Sinema frá Vestur-Virginíu og Arizona. Þau hafa bæði lýst því yfir að þau vilji ekki fella niður regluna um aukinn meirihluta. Sjá einnig: Skaut á tvo áhrifamikla Demókrata í öldungadeildinni Uppi eru hugmyndir um að gera takmarkaðar eða tímabundnar breytingar á reglunni svo hægt væri að koma þessu frumvarpi í gegn. Bæði Manchin og Sinema komu að því að semja frumvarpið sem Repúblikanar stöðvuðu í kvöld. Washington Post hefur eftir þingmönnum Repúblikanaflokksins að þeir hafi litlar áhyggjur af því að Manchin og Sinema muni láta undan þrýstingi flokksbræðra og systra sinna.
Reglan um aukinn meirihluta Reglan segir til um að þörf sé á 60 atkvæðum af hundrað fyrir flest frumvörp en á ensku kallast þessi regla „filibuster“. Hún felur í raun í sér að hvaða þingmaður sem er getur tafið störf þingsins með málþófi, nema minnst 60 þingmenn greiði atkvæði gegn því. Á árum áður þurftu þingmenn að standa í pontu og halda ræður til að stöðva störf þingsins með málþófi en því var breytt á þá leið að þingmenn þyrftu bara að lýsa því yfir að þeir ætluðu að tefja störf þingsins og ekki standa í pontu. Það þarf þó einungis 51 atkvæði til að fella regluna niður. Demókratar felldu regluna niður tímabundið þegar Repúblikanar stóðu í vegi margra sem Barack Obama hafði tilnefnt til fjölmargra opinberra embætta og Repúblikanar felldu niður regluna varðandi tilnefningu hæstaréttardómara í forsetatíð Trumps.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Joe Biden Donald Trump Árás á bandaríska þinghúsið Tengdar fréttir Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur stefnt rannsóknarnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar áhlaupið á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans. 18. október 2021 23:31 Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. 16. október 2021 12:58 Demókratar í þröngri stöðu fá liðsauka frá repúblikönum Hópur repúblikana sem er andsnúinn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, ætlar að lýsa yfir stuðningi við nokkra sitjandi þingmenn demókrata sem sjá fram á erfiðan endurkjörsslag í þingkosningum á næsta ári. 14. október 2021 14:33 Sagði að án takmarkana á kjörsókn muni Repúblikanar tapa um árabil Öldungadeildarþingmaðurinn bandaríski Ted Cruz segir Demókrata ætla sér að veita milljónum ólöglegra innflytjenda, barnaníðingum og öðrum glæpamönnum kosningarétt. Þannig muni Demókratar tryggja yfirráð sínum í kosningum vestanhafs um árabil. 20. mars 2021 22:52 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira
Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur stefnt rannsóknarnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar áhlaupið á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans. 18. október 2021 23:31
Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. 16. október 2021 12:58
Demókratar í þröngri stöðu fá liðsauka frá repúblikönum Hópur repúblikana sem er andsnúinn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, ætlar að lýsa yfir stuðningi við nokkra sitjandi þingmenn demókrata sem sjá fram á erfiðan endurkjörsslag í þingkosningum á næsta ári. 14. október 2021 14:33
Sagði að án takmarkana á kjörsókn muni Repúblikanar tapa um árabil Öldungadeildarþingmaðurinn bandaríski Ted Cruz segir Demókrata ætla sér að veita milljónum ólöglegra innflytjenda, barnaníðingum og öðrum glæpamönnum kosningarétt. Þannig muni Demókratar tryggja yfirráð sínum í kosningum vestanhafs um árabil. 20. mars 2021 22:52