Piqu­e kom Börsungum til bjargar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Pique fagnar marki sínu.
Pique fagnar marki sínu. Alex Caparros/Getty Images

Þegar neyðin er stærst er Gerard Pique næst. Spænski miðvörðurinn kom Barcelona til bjargar er liðið vann nauman 1-0 sigur á Dynamo Kiev er liðin mættust á Nývangi í Meistaradeild Evrópu.

Fyrir leik var ljóst að Börsungur yrðu að vinna ef þeir ætluðu sér að eiga möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Gengi liðsins hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra yfir undanfarið og leikur kvöldsins bar þess merki.

Aðeins eitt mark var skorað og það gerðu heimamenn í Barcelona. Gerard Pique skoraði eftir fyrirgjöf Jordi Alba frá vinstri á 36. mínútu leiksins. Reyndist það eina mark leiksins og Börsungar geta andað léttar, um stund.

Barcelona er með þrjú stig að loknum þremur umferðum í E-riðli. Bayern München eru á toppnum með sex stig á meðan Benfica er í öðru sæti með fjögur stig.

Alls eru tveir leikir búnir í Meistaradeildinni í dag en Salzburg vann 3-1 sigur á Wolfsburg í hinum leiknum sem lokið er.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira