Davíð Smári áfrýjar banninu: „Óútskýrð og illskiljanleg“ refsing Sindri Sverrisson skrifar 21. september 2021 11:01 Egill Darri Makan Þorvaldsson og Davíð Smári Lamude fengu báðir að líta rauða spjaldið í leiknum gegn Fram. Facebook/@kordrengir Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, hefur ákveðið að áfrýja fimm leikja banninu sem hann var úrskurðaður í vegna framkomu í garð dómara í lok leiks við Fram í Lengjudeild karla í fótbolta. Davíð Smári tekur út fyrsta leikinn í banninu á föstudag þegar Kórdrengir mæta Vestra. Ef áfrýjunin skilar engu þarf hann svo að byrja næstu leiktíð í fjögurra leikja banni, og missa þarf með af fimmtungi næsta Íslandsmóts. Fékk rautt spjald og tók svo spjöldin af dómara eftir leik Davíð Smári fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma leiksins við Fram, rétt áður en Fram jafnaði metin í 2-2 með einni af síðustu spyrnum leiksins. Um var að ræða annað rauða spjaldið sem þjálfarinn fékk í sumar. Fótbolti.net var með fulltrúa á staðnum og fjallaði um málið degi síðar, 12. september, þar sem sagði að Davíð Smári hefði rokið inn á völlinn eftir að Fram jafnaði og átt þar orðastað við dómarann Egil Arnar Sigurþórsson. Heiðar Helguson, aðstoðarþjálfari Kórdrengja, hjálpaði til við að koma Davíð Smára í burtu. Eftir að flautað var til leiksloka kom Davíð hins vegar aftur inn á og lét Egil dómara heyra það, og á myndum má sjá að hann hrifsaði gula og rauða spjaldið af Agli sem hafði þá sýnt einum leikmanna Kórdrengja rauða spjaldið. Aganefnd KSÍ úrskurðaði svo Davíð í fimm leikja bann og byggði ákvörðun sína á skýrslu dómara og andsvörum lögmanns Davíðs Smára, Stefáns Karls Kristjánssonar. Við svo langt bann ætla Kórdrengir hins vegar ekki að una. Rifja upp dæmi um að spjöld hafi verið tekin af dómara Í bréfi lögmannsins til KSÍ segir að úrskurðinum um fimm leikja bann hafi ekki fylgt neinn rökstuðningur. „Virðist ákvörðun nefndarinnar fremur bundin geðþótta en hreinum rökstuðningi,“ segir þar. Jafnframt eru tekin til dæmi um það þegar spjöldin hafa verið hrifsuð af dómurum og mönnum refsað með vægari hætti en Davíð Smára. Í bréfinu segir jafnframt að Davíð Smári muni una því að hafa fengið refsingu en að refsingin sé of þung. Bréfið í heild má lesa hér að neðan:
Davíð Smári tekur út fyrsta leikinn í banninu á föstudag þegar Kórdrengir mæta Vestra. Ef áfrýjunin skilar engu þarf hann svo að byrja næstu leiktíð í fjögurra leikja banni, og missa þarf með af fimmtungi næsta Íslandsmóts. Fékk rautt spjald og tók svo spjöldin af dómara eftir leik Davíð Smári fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma leiksins við Fram, rétt áður en Fram jafnaði metin í 2-2 með einni af síðustu spyrnum leiksins. Um var að ræða annað rauða spjaldið sem þjálfarinn fékk í sumar. Fótbolti.net var með fulltrúa á staðnum og fjallaði um málið degi síðar, 12. september, þar sem sagði að Davíð Smári hefði rokið inn á völlinn eftir að Fram jafnaði og átt þar orðastað við dómarann Egil Arnar Sigurþórsson. Heiðar Helguson, aðstoðarþjálfari Kórdrengja, hjálpaði til við að koma Davíð Smára í burtu. Eftir að flautað var til leiksloka kom Davíð hins vegar aftur inn á og lét Egil dómara heyra það, og á myndum má sjá að hann hrifsaði gula og rauða spjaldið af Agli sem hafði þá sýnt einum leikmanna Kórdrengja rauða spjaldið. Aganefnd KSÍ úrskurðaði svo Davíð í fimm leikja bann og byggði ákvörðun sína á skýrslu dómara og andsvörum lögmanns Davíðs Smára, Stefáns Karls Kristjánssonar. Við svo langt bann ætla Kórdrengir hins vegar ekki að una. Rifja upp dæmi um að spjöld hafi verið tekin af dómara Í bréfi lögmannsins til KSÍ segir að úrskurðinum um fimm leikja bann hafi ekki fylgt neinn rökstuðningur. „Virðist ákvörðun nefndarinnar fremur bundin geðþótta en hreinum rökstuðningi,“ segir þar. Jafnframt eru tekin til dæmi um það þegar spjöldin hafa verið hrifsuð af dómurum og mönnum refsað með vægari hætti en Davíð Smára. Í bréfinu segir jafnframt að Davíð Smári muni una því að hafa fengið refsingu en að refsingin sé of þung. Bréfið í heild má lesa hér að neðan: Krafa Þess er krafist að 5 leikja bann það sem aga- og úrskurðarnefnd KSÍ gerði Davíði Smára þann 14. september 2021 verði stytt. Málsatvik Davíð Smári hlaut rautt spjald vegna framkomu sinnar í leik Kórdrengja og Fram laugardaginn 11. september 2021. Dómari leiksins skilaði inn skýrslu sinni um ofsalega framkomu Davíðs Smára. Var andsvörum skilað vegna skýrslunnar þann 14. september en síðar þann sama dag úrskurðaði nefndin um 5 leikja bann Davíðs Smára. Þar sem um annað rautt spjald hans var að ræða á tímabilinu má ætla að 2 leikir af banninu séu vegna þess en þá standa eftir þrír leikir sem hann fær vegna framkomunnar. Áfrýjunarheimild Áfrýjunarheimild er í a lið gr. 16.2 í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál sem og í a) gr. 4.2. í reglugerð um áfrýjunardómstól KSÍ. Málsmeðferð Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ kvað á um 5 leikja bann Davíðs Smára. Enginn rökstuðningur fylgdi úrskurði nefndarinnar né heldur mátti sjá nokkra afstöðu til þeirra atriða sem tilgreind voru Davíð Smára til varnar. Virðist ákvörðun nefndarinnar fremur bundin geðþótta en hreinum rökstuðningi. Eins og áður er getið má ætla að 2 leikir af 5 séu vegna annars rauðs spjald en þá er aðeins um ágiskun að ræða. Standa þá eftir þrír leikir sem ætla má að sé viðbótarrefsing eða þyngd refsing Davíðs Smára. Áfrýjandi á ekki annarra kosta völ en að áfrýja máli þessu til þess að fá rökstuðning fyrir því langa banni sem honum er gert að sæta. Er þetta bann þannig ekki í samræmi við önnur kunn dæmi af ofsafenginni framkomu leikmanna í garð dómara Kassim Doumbia Kassim fékk 3 leikja bann fyrir hegðun sína í leik FH og Breiðablik 21. júlí 2014. Veittist hann þar að dómara leiksins Þorvaldi Árnasyni, greip í hendi hans, og tók af honum rautt spjald sem Þorvaldur hafði gefið honum. Fékk Kassim 2 leiki í bann fyrir hegðun sína og 1 leik fyrir rauða spjaldið. Kassim fékk síðan 4 leikja bann fyrir hegðun sína í lokaleik FH og Stjörnunnar árið 2014. Eftir að leik lauk trylltist Kassim algerlega og þurftu leikmenn FH að halda honum tökum svo hann réðist ekki á dómara leiksins. Fékk hann 2 leiki í bann fyrir hegðun og 2 leiki fyrir annað rauða spjaldið sitt það árið. Elfar Freyr Helgason Í september 2019 missti Elfar Freyr leikmaður Breiðabliks stjórn á skapi sínu. Hann hafði fengið að líta rautt spjald fyrir grófa tæklingu. Þegar dómari leiksins sýndi honum rauða spjaldið reif hann spöldin af dómara og grýtti þeim í grasið. Fékk Elvar 3 leikja bann þar af tvo leiki fyrir háttsemi sína. Samantekið Kassim fékk tvívegis 2ja leikja bann fyrir framkomu sína. Virðist því að meta verður í sitthvoru lagi þá háttsemi sem leiðir til rauða spjaldsins, þ.e. brot leikmanns og síðan til þyngingar hvað á sér stað eftir að spjald er gefið. Sú háttsemi Davíðs Smára að fara út fyrir boðvang leiddi til þess að hann fékk rautt spjald. Það er ekki hægt að nota það brot hans til refsinþyngingar heldur verður að skoða það sem gekk á í framhaldinu. Eftir að Fram skoraði jöfnunarmark sitt á 96. mínútu missti dómarinn stjórn á leiknum. Leikmenn Fram fögnuðu og leikmenn Kórdrengja þustu að dómara leiksins. Flautaði dómarinn því leikinn af. Leikur var því ekki í gangi þegar Davíð Smári kom inn á völlinn til þess að eiga orð við dómara. Úr myndasyrpu frá leiknum sem ljósmyndari fotbolti.net tók og er að finna á heimasíðu fotbolta.net sést þetta vel. Davíð Smári tók spjöldin af dómara leiksins eftir að dómari hafði flautað leikinn af. Hann grýtti þeim aldrei í jörðina eins og Elfar Freyr gerði. Hann lagði aldrei hendur á dómara eins og Kassim Doumbia gerði og hann viðhafði engin særandi og meiðandi orð eins og Egill Darri Makan Þorvaldsson leikmaður Kórdrengja varð uppvís að, skv. skýrslu dómara. Af fyrri afgreiðslu aga- og úrskurðarnefndar að dæma er refsing Davíðs Smára einfaldlega of þung. Hún er óútskýrð og illskiljanleg. Af þeim sökum er Davíð Smára nauðsynlegt að áfrýja úrskurðaðri refsingu. En Davíð Smári mun engu að síður una því að hafa fengið refsingu. Öfugt við það sem fyrrgreindir leikmenn Elfar Freyr og Kassim gerðu þá fór Davíð Smári beint til dómara leiksins eftir að atvik róuðust og baðst afsökunar á framkomu sinni. Sætir undrun að engin sjónarmið um mildun skuli koma til skoðunar. Þá má velta því upp hvort rétt og stætt sé á að beita samlagningarreglum við ákvörðun refsingar. Fimm leikja bann án þess að snerta leikmann, án þess að snerta við dómara er þung refsing. Jafnvel þó áfrýjandi hafi brotið af sér og látið í sér heyra þá eru viðurlög næstum 25% fjarvera frá leikjum Íslandsmóts. Er þetta hart einkum þar sem frumbrot áfrýjanda og sem leiðir til 2ja leikja banns er það að hafa farið úr boðvangi. Að öðru leyti vísast til greinargerðar áfrýjanda sem send var aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Virðingarfyllst Stefán Karl Kristjánsson
Krafa Þess er krafist að 5 leikja bann það sem aga- og úrskurðarnefnd KSÍ gerði Davíði Smára þann 14. september 2021 verði stytt. Málsatvik Davíð Smári hlaut rautt spjald vegna framkomu sinnar í leik Kórdrengja og Fram laugardaginn 11. september 2021. Dómari leiksins skilaði inn skýrslu sinni um ofsalega framkomu Davíðs Smára. Var andsvörum skilað vegna skýrslunnar þann 14. september en síðar þann sama dag úrskurðaði nefndin um 5 leikja bann Davíðs Smára. Þar sem um annað rautt spjald hans var að ræða á tímabilinu má ætla að 2 leikir af banninu séu vegna þess en þá standa eftir þrír leikir sem hann fær vegna framkomunnar. Áfrýjunarheimild Áfrýjunarheimild er í a lið gr. 16.2 í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál sem og í a) gr. 4.2. í reglugerð um áfrýjunardómstól KSÍ. Málsmeðferð Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ kvað á um 5 leikja bann Davíðs Smára. Enginn rökstuðningur fylgdi úrskurði nefndarinnar né heldur mátti sjá nokkra afstöðu til þeirra atriða sem tilgreind voru Davíð Smára til varnar. Virðist ákvörðun nefndarinnar fremur bundin geðþótta en hreinum rökstuðningi. Eins og áður er getið má ætla að 2 leikir af 5 séu vegna annars rauðs spjald en þá er aðeins um ágiskun að ræða. Standa þá eftir þrír leikir sem ætla má að sé viðbótarrefsing eða þyngd refsing Davíðs Smára. Áfrýjandi á ekki annarra kosta völ en að áfrýja máli þessu til þess að fá rökstuðning fyrir því langa banni sem honum er gert að sæta. Er þetta bann þannig ekki í samræmi við önnur kunn dæmi af ofsafenginni framkomu leikmanna í garð dómara Kassim Doumbia Kassim fékk 3 leikja bann fyrir hegðun sína í leik FH og Breiðablik 21. júlí 2014. Veittist hann þar að dómara leiksins Þorvaldi Árnasyni, greip í hendi hans, og tók af honum rautt spjald sem Þorvaldur hafði gefið honum. Fékk Kassim 2 leiki í bann fyrir hegðun sína og 1 leik fyrir rauða spjaldið. Kassim fékk síðan 4 leikja bann fyrir hegðun sína í lokaleik FH og Stjörnunnar árið 2014. Eftir að leik lauk trylltist Kassim algerlega og þurftu leikmenn FH að halda honum tökum svo hann réðist ekki á dómara leiksins. Fékk hann 2 leiki í bann fyrir hegðun og 2 leiki fyrir annað rauða spjaldið sitt það árið. Elfar Freyr Helgason Í september 2019 missti Elfar Freyr leikmaður Breiðabliks stjórn á skapi sínu. Hann hafði fengið að líta rautt spjald fyrir grófa tæklingu. Þegar dómari leiksins sýndi honum rauða spjaldið reif hann spöldin af dómara og grýtti þeim í grasið. Fékk Elvar 3 leikja bann þar af tvo leiki fyrir háttsemi sína. Samantekið Kassim fékk tvívegis 2ja leikja bann fyrir framkomu sína. Virðist því að meta verður í sitthvoru lagi þá háttsemi sem leiðir til rauða spjaldsins, þ.e. brot leikmanns og síðan til þyngingar hvað á sér stað eftir að spjald er gefið. Sú háttsemi Davíðs Smára að fara út fyrir boðvang leiddi til þess að hann fékk rautt spjald. Það er ekki hægt að nota það brot hans til refsinþyngingar heldur verður að skoða það sem gekk á í framhaldinu. Eftir að Fram skoraði jöfnunarmark sitt á 96. mínútu missti dómarinn stjórn á leiknum. Leikmenn Fram fögnuðu og leikmenn Kórdrengja þustu að dómara leiksins. Flautaði dómarinn því leikinn af. Leikur var því ekki í gangi þegar Davíð Smári kom inn á völlinn til þess að eiga orð við dómara. Úr myndasyrpu frá leiknum sem ljósmyndari fotbolti.net tók og er að finna á heimasíðu fotbolta.net sést þetta vel. Davíð Smári tók spjöldin af dómara leiksins eftir að dómari hafði flautað leikinn af. Hann grýtti þeim aldrei í jörðina eins og Elfar Freyr gerði. Hann lagði aldrei hendur á dómara eins og Kassim Doumbia gerði og hann viðhafði engin særandi og meiðandi orð eins og Egill Darri Makan Þorvaldsson leikmaður Kórdrengja varð uppvís að, skv. skýrslu dómara. Af fyrri afgreiðslu aga- og úrskurðarnefndar að dæma er refsing Davíðs Smára einfaldlega of þung. Hún er óútskýrð og illskiljanleg. Af þeim sökum er Davíð Smára nauðsynlegt að áfrýja úrskurðaðri refsingu. En Davíð Smári mun engu að síður una því að hafa fengið refsingu. Öfugt við það sem fyrrgreindir leikmenn Elfar Freyr og Kassim gerðu þá fór Davíð Smári beint til dómara leiksins eftir að atvik róuðust og baðst afsökunar á framkomu sinni. Sætir undrun að engin sjónarmið um mildun skuli koma til skoðunar. Þá má velta því upp hvort rétt og stætt sé á að beita samlagningarreglum við ákvörðun refsingar. Fimm leikja bann án þess að snerta leikmann, án þess að snerta við dómara er þung refsing. Jafnvel þó áfrýjandi hafi brotið af sér og látið í sér heyra þá eru viðurlög næstum 25% fjarvera frá leikjum Íslandsmóts. Er þetta hart einkum þar sem frumbrot áfrýjanda og sem leiðir til 2ja leikja banns er það að hafa farið úr boðvangi. Að öðru leyti vísast til greinargerðar áfrýjanda sem send var aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Virðingarfyllst Stefán Karl Kristjánsson
Lengjudeild karla Kórdrengir Tengdar fréttir Þjálfari Kórdrengja dæmdur í fimm leikja bann Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja í Lengjudeild karla, hefur verið dæmdur í fimm leikja bann fyrir atvik sem átti sér stað eftir leik liðsins gegn Fram á dögunum. 14. september 2021 18:01 Tók spjöldin af dómara leiksins | Fyrrverandi dómari setur spurningamerki við gæslumál á völlum landsins Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, var heldur betur ósáttur við dómara leiksins eftir jafntefli við Fram í Lengjudeild karla í gær. 12. september 2021 11:00 Mest lesið Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Handbolti Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Fleiri fréttir Lopetegui tekur við AC Milan Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Guðmundur Baldvin: Þrjú stig í hús á erfiðum velli og það er bara frábært Lewandowski með þrennu er Barcelona kom til baka gegn Valencia „Það er mikill efniviður í Fram“ Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Stefán Teitur skoraði í óvæntum sigri á Sverri Inga og félögum Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Sjá meira
Þjálfari Kórdrengja dæmdur í fimm leikja bann Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja í Lengjudeild karla, hefur verið dæmdur í fimm leikja bann fyrir atvik sem átti sér stað eftir leik liðsins gegn Fram á dögunum. 14. september 2021 18:01
Tók spjöldin af dómara leiksins | Fyrrverandi dómari setur spurningamerki við gæslumál á völlum landsins Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, var heldur betur ósáttur við dómara leiksins eftir jafntefli við Fram í Lengjudeild karla í gær. 12. september 2021 11:00
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn