Íslenski boltinn

Lof og last: Árni Vill kominn heim, svart­hvítur Chopart, ó­bilandi trú Skaga­manna og and­leysi í Breið­holti

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Árni Vilhjálmsson var frábær er Breiðablik vann Val.
Árni Vilhjálmsson var frábær er Breiðablik vann Val. Vísir/Hulda Margrét

Tuttugusta umferð Pepsi Max deildarinnar í fótbolta lauk í gærkvöld með 4-0 sigri FH á Stjörnunni. Þegar tvær umferðir eru eftir er deildin æsispennandi bæði á toppi sem og botni. Hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.

Lof

Árni Vilhjálmsson

Árni hefur bara orðið betri og betri eftir því sem líður á sumarið. Hann var hreint út sagt frábær í 3-0 sigri Breiðabliks á Val. Gerði sigurinn það að verkum að Blikar eru á toppnum þegar tvær umferðir eru eftir á meðan Valur er fallið niður í 5. sæti.

Hægt væri að setja enn fleiri leikmenn Blika í Lof-flokkinn en liðið hefur verið hreint út sagt ótrúlegt undanfarnar vikur. Árni fær hrósið að þessu sinni fyrir að skora tvö mörk og vera kominn með 10 mörk í 19 leikjum.

Kennie Chopart

Þrátt fyrir að vera frá Danmörku og hafa spilað með bæði Stjörnunni og Fjölni hér á landi virðast fáir meiri KR-ingar þessa dagana heldur en Kennie Knac Chopart. Hann bar fyrirliðabandið nýverið því til sönnunar.

Þá virðist sá danski ætla að gera allt í sem í valdi sínu stendur til að koma KR í Evrópu. Skoraði hann eitt og lagði upp annað í 2-0 sigri KR á Keflavík. Evrópudraumurinn lifir því enn í Vesturbænum.

Erlingur Agnarsson

Fyrr í sumar fór sú orðræða á kreik að Erlingur Agnarsson væri ekki að skora nóg eða leggja upp fyrir leikmann sem spilar jafn framarlega og hann gerir í liði Víkings. Erlingur svaraði því með mörkum gegn FH og KR. Hann skoraði svo tvö af þremur mörkum Víkinga er liðið lagði HK 3-0.

Baldur Logi Guðlaugsson

Skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu er FH vann Stjörnuna 4-0. Skrúfaði hann spyrnuna - sem var utarlega vinstra megin - upp í samskeytin nær. Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, kom engum vörnum við. 

Trú Skagamanna

Skagamenn eru þekktir fyrir allt annað að gefast upp. Lærisveinar Jóhannesar Karls Guðjónssonar unnu 3-1 sigur á Leikni Reykjavík og er nú „aðeins“ tveimur stigum frá öruggu sæti.

ÍA mætir Fylki í næstsíðustu umferð deildarinnar. Sannkallaður sex stiga leikur þar á ferðinni en bæði lið eru í fallsæti sem stendur.

Last

Andleysi í Breiðholtinu

Eftir að Leiknir Reykjavík svo gott sem tryggði veru sína í deildinni hefur lítið sem ekkert gengið upp hjá liðinu. Tapið á Skaganum var þriðja tap liðsins í síðustu fjórum leikjum. Þá hafa Leiknismenn aðeins unnið einn af síðustu sjö leikjum.

Reynsluleysi Eggerts Arons

Eggert Aron Magnússon fékk beint rautt spjald fyrir glórulausa tæklingu er hann tæklaði Guðmund Kristjánsson aftan frá í leik Stjörnunnar og FH í Garðabænum.

Valur

Það er í raun ómögulegt að henda einum manni undir rútuna hér. Íslandsmeistarar Vals hafa tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Liðið hefur fallið á hverju prófinu á fætur öðru og er nú í 5. sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Breiðabliks.


Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Skagamenn enn á lífi í deildinni eftir sigur á Leikni

Skagamenn fengu Leiknir R. í heimsókn á Akranes í dag í botnbaráttuslag þar sem ÍA þurfti nauðsynlega á þremur stigum að halda til þess að auka möguleika sína á því að bjarga sér frá falli. Leiknir með 22 stig fyrir leikinn og ansi mikið þarf að gerast svo þeir fari niður í Lengjudeildina að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×