Real Madrid aftur á sigurbraut

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Dani Carvajal fagnar marki sínu í kvöld.
Dani Carvajal fagnar marki sínu í kvöld. David Bustamante/Soccrates/Getty Images

Real Madríd gerði óvænt jafntefli við Levante í síðustu umferð en Daniel Carvajal sá til þess að spænska stórveldið tapaði ekki stigum tvo leiki í röð. Loktölur 1-0 og Madrídingar því me- sjö stig eftir þrjá leiki.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik, en sex gul spjöld fóru á loft. Þrátt fyrir að liðin hafi skipt boltanum nokkuð jafnt á milli sín voru það gestirnir frá Madrid sem að voru líklegri aðilinn.

Það borgaði sig loksins eftir klukkutíma leik þegar að Daniel Carvajal kom gestunum yfir eftir stoðsendingu frá franska framherjanum Karim Benzema.

Það reyndist eina mark leiksins og Real Madrd er því með sjö stig eftir þrjár umferðir. Nafnar þeirra frá Betis eru hinsvegar einungis með tvö stig eftir jafn marga leiki, og eru enn í leit að fyrsta sigri tímabilsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira