Innlent

Leik­skólar borgarinnar verða opnir frá hálf átta til hálf fimm

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Leikskólar í Reykjavík verða almennt opnir frá 7:30 til 16:30.
Leikskólar í Reykjavík verða almennt opnir frá 7:30 til 16:30. Vísir/Vilhelm

Meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur hefur samþykkt að opnunartími leikskóla borgarinnar verði frá 7:30 til 16:30, frá og með 1. nóvember næstkomandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Þar segir að samþykktin sé í samræmi við tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs sem hafi skilað viðamikilli skýrslu í vor.

„Frá upphafi heimsfaraldursins hefur opnunartími leikskólanna verið frá kl. 07:30 til 16:30 og hefur þorri foreldra dvalarsamning í samræmi við hann. Opnunartími skilgreindra leikskóla, eins til tveggja í hverju hverfi, verður eftir sem áður frá 7:30 til 17:00 frá og með næstu áramótum að því gefnu að aðstæður á tímum heimsfaraldurs leyfi það. Er þetta meðal annars gert til að mæta niðurstöðum jafnréttismats frá júní 2020.“

Foreldrar sem vilja sækja um að hafa barn sitt á leikskóla til klukkan 17 geta komið óskum sínum á framfæri við leikskólastjóra á viðkomandi leikskóla í september. Í tilkynningunni segir að í næstu viku verði birtar upplýsingar um hvaða leikskólar verði opnir til klukkan 17. Í kjölfarið verði hægt að sækja um flutning yfir í þá leikskóla, á vala.is.

„Komi til þess að eftirspurn eftir leikskóla með dvalartíma til kl. 17:00 verði umfram laus pláss fá þeir hópar foreldra forgang sem samkvæmt jafnréttismati má áætla að myndu eiga erfiðast með að bregðast við breyttum opnunartíma.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×