Neytendur

For­maður Neyt­enda­sam­takanna óttast vaxta­hækkana­ferli

Heimir Már Pétursson skrifar
Viðskiptabankarnir þrír hækkuð allir vexti á húsnæðislánum í gær um 0,15 til 0,25 prósentustig.
Viðskiptabankarnir þrír hækkuð allir vexti á húsnæðislánum í gær um 0,15 til 0,25 prósentustig. Vísir/Hjalti

Formaður Neytendasamtakanna segir enga leið fyrr neytendur að átta sig á hvort vaxtahækkanir bankanna á húsnæðislánum í gær séu réttmætar. Þær undirstriki mikilvægi þess að fólk taki þátt í hópmálsókn samtakanna gegn bönkunum en nú þegar hafa um þúsund manns skráð sig á málaferlin.

Viðskiptabankarnir hækkuðu allir vexti sína á íbúðalánum í gær allt frá 0,15 prósentustigum upp um 0,25 prósentustig.Þessar hækkanir fylgja hækkun Seðlabanka Íslands á meginvöxtum sínum um 0,25 prósentur hinn 19. maí síðast liðinn eftir langt vaxtalækkunarferli.

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna skorar á neytendur að taka þátt í hópmálsókn gegn viðskiptabönkunum vegna óskýrra skilamála þeirra fyrir breytingum á vöxtum húsnæðislána.Vísir/Vilhelm

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir að enn á ný sé hafið ferli til hækkunar vaxta hjá bönkunum.

„Og enn á ný er engin leið að átta sig á því hvort að þær séu réttmætar. Það skýrist af því að skilmálar lána eru óskýrir. Innifela einhliða og huglæga mælikvarða sem er ekki hægt að sannreyna,“ segir Breki.

Þegar Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína á dögunum úr 0,75 prósentum í eitt prósent var það rökstutt með þrálátri verðbólgu bæði innanlands og utan. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði við það tækifæri að bankinn myndi ekki hika við að hækka meginvexti enn meira ef verðbólgan gæfi ekki eftir. Hún lækkaði síðan um 0,2 prósentustig milli mánaða í síðasta mánuði þegar hún mældis 4,4 prósent.

Breki segir ástæðu til að óttast að nú sé vaxtahækkunarferli hafið.

„Já, og sérstaklega með tilliti til þess að þegar Seðlabankinn hóf vaxtalækkunarferli sitt árið 2019 vakti það athygli að það tók bankana marga mánuði að lækka lánsvexti. En núna þegar vextir Seðlabankans hækka eru þeir örsnöggir að hækka þá aftur,“ segir formaður Neytendasamtakanna.

Þetta varpi skýru ljósi á þann aðstöðumun sem neytendur búi gjarnan við gagnvart fyrirtækjum í yfirburðarstöðu fjárhagslega og í þekkingu sem geri þeim að samþykkja einhliða og ósanngjarna skilmála.

Neytendasamtökin standa fyrir hópmálsókn gegn bönkunum vegna óskýrra skilmála á bakvið breytingar á vaxtakjörum og nú hafa yfir þúsund manns skráð sig í hópinn og enn er opið fyrir skráningar á vaxtamalid.is .

„Og við hvetjum alla til að skrá sig og sýna að neytendur standi saman með óyggjandi hætti. Að við séum reiðubúin að sækja rétt okkar og tryggja afgerandi niðurstöðu því við svona ósanngjarna og einhliða mælikvarða er ekki hægt að búa,“ segir sagði Breki Karlsson.


Tengdar fréttir

Bankarnir hækkuðu allir vexti hús­næðis­lána í dag

Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki hafa allir kynnt vaxtahækkanir á útlánum sínum í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Hækka vextir vissra lána um 0,15 til 0,25 prósentustig og tóku breytingarnar gildi í dag.

Fast­eigna­mat hækkar um 7,4 prósent á árinu

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,4 prósent á árinu og verður 10.340 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár, fyrir árið 2022. Þetta er töluvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 2,1 prósent á landinu öllu.

Verðbólga lækkar milli mánaða

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,4% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,0%.

Hækkun vaxta nú gæti verið byrjunin á vaxtahækkunarferli

Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka vexti meira dugi vaxtahækkun hans í dag ekki til að draga úr verðbólgu sem er langt yfir markmiði bankans. Ekki er reiknað með að verðbólgan fari niður að markmiðinu fyrr en um mitt næsta ár.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×