Tíska og hönnun

Smiðja í skapandi fataviðgerðum á Garðatorgi í dag

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
 Hönnunarmars á Hönnunarsafni Íslands Garðatorgi
 Hönnunarmars á Hönnunarsafni Íslands Garðatorgi Vísir/Vilhelm

Ýr Jóhannsdóttir er textílhönnuður og listakona sem starfar undir nafninu Ýrúrarí. Verk hennar eru að mestu unnin í prjóni og í þeim mætast húmor, handverk og hreyfing. Ýr hefur miðlað aðferðarfræði sinni í smiðjum þar sem unnið er með ósöluhæfar peysur úr fatasöfnun Rauðakrossins og þær fá nýtt líf

Fólki hefur verið boðið að taka að sér peysu frá Rauða Krossinum og taka þátt í smiðjum í skapandi fataviðgerðum. Uppskera þessarar vinnu er til sýnis á HönnunarMars ásamt þeim peysum sem Ýr sjálf hefur umbreytt á tímabilinu.

Á HönnunarMars í dag veðrur boðið upp á skapandi viðgerðarsmiðju á sýningu Ýrúrarí á Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi frá 12 til 18. Á safninu eru einnig sýningarnar Safnið á röngunni – Náttúrulitun í nútíma samhengi og sýning á verkum Kristínar Þorkelsdóttur. 

Ýr stundaði nám í textílhönnun við Myndlistarskólann í Reykjavík og lauk BA gráðu í faginu frá Glasgow School of Art árið 2017. Hún stundar nú nám í listkennsludeild LHÍ „Peysa með öllu fyrir alla er hluti“ af lokaverkefni Ýrar.

Undanfarna fjóra mánuði hefur Ýr verið í vinnustofudvöl í Hönnunarsafni Íslands. Þar hefur hún haldið áfram með verkefnið „Peysa með öllu“ sem kynnt var á HönnuanrMars 2020. Þá hóf hún samstarfi við fatasöfnun Rauða Krossins með peysur sem lent höfðu í óhöppum í fyrra lífi og voru ekki boðlegar til sölu í verslunum Rauða Krossins.

Enn safnast upp töluvert magn af ósöluhæfum peysum til fatasöfnunarinnar og þörf er á fleiri hugum og höndum í verkið. Framhald verkefnisins er því „Peysa með öllu fyrir alla“. Á vinnustofunni hefur Ýr unnið áfram með aðgengilegar og skapandi fataviðgerðir með miðlunarleiðum sem gera fataviðgerðirnar persónulegar og skemmtilegar. Markmið verkefnisins er breiða út boðskapinn sem er að stuðla að lengri samverutíma okkar með þeim fötum sem við eigum nú þegar eða eins og Ýr bendir á „Vistvænasta flíkin er nú þegar í fataskápnum þínum“

Verk Ýrar hafa verið sýnd í grasrótar listarýmum í Reykjavík m.a í Gallerý Port, Ekkisens og Flæði auk Textile Art center í New York. Auk þess hafa verk hennar verið keypt í safneign Textiel Museum í Hollandi, Museum für Kunst und Gewerbe í Þýskalandi og Museum of International folk Art í Nýju Mexíkó. Umfjallanir og verk Ýrúrarí hafa birst víða um heim m.a á Vogue.com, Designboom, Cultured Magazine og Die Zeit. Einnig hafa listafólkið Erykah Badu, Tierra Whack, Noel Fielding og Miley Cyrus sérpantað af henni prjónaverk.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×