Tíska og hönnun

Stjórnleysi með áherslu á gróða nú að missa sinn mátt

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Magnea Einarsdóttir og Ragna Fróðadóttir voru gestir í öðrum þætti af DesignTalks talks sem birtast á Vísi á meðan HönnunarMars stendur.
Magnea Einarsdóttir og Ragna Fróðadóttir voru gestir í öðrum þætti af DesignTalks talks sem birtast á Vísi á meðan HönnunarMars stendur. DesignTalks talks

„Það sem mér finnst svo spennandi við þessa tíma sem eru núna, er að smærri einingar eru algjörlega málið,“ segir Ragna Fróðadóttir textílhönnuður og verkefnastjóri hjá Li Edelkoort Inc.

„Þetta stóra, útblásna, fjöldamassa, nánast stjórnleysi með áherslum sem að eru ekki í takt við einhverja jákvæða framtíðarsýn, sem að gengur nánast bara út á gróða og hagnað. Þessi hluti þessa iðnaðar er svolítið að missa sig, hann er svolítið að missa sinn mátt og við erum að sjá að þetta er ekki málið.“  

Í öðrum þætti af hlaðvarpinu DesignTalks talks ræddi Hlín Helga Guðlaugsdóttir hönnuður og stjórnandi þáttarins við Rögnu og Magneu Einarsdóttur fatahönnuð, stofnanda og og eiganda fatamerkisins Magnea. Þær ræddu meðal annars um fatahönnun, textíl og tækni, sjálfbærni og von.

Vorum áður sjálfbærari en í dag

Magnea segir að hún hafi verið með hugtakið sjálfbærni sem regnhlíf síðan hún byrjaði í námi í fatahönnun og í hennar starfi síðan. 

„Ég er með mitt eigið fyrirtæki og er að reyna að gera mitt besta í þessum málum og hef líka mikinn áhuga á því að þróa það sem ég geri í þessar áttir.“

Að hennar mati getur íslenskt hönnunarsamfélag lagt ýmislegt á vogarskálarnar í umræðunni um sjálfbærni. 

„Við með allt okkar fólk og alla okkar færni. Okkar framlag getur verið þetta samtal að setja svolítið fókusinn á það hvernig við gerum hlutina hér. Þó að mitt viðfangsefni hafi verið prjón og ull sem sumum þykir kannski gamaldags, boring, en ég held að einmitt það að taka eitthvað hefðbundið hráefni, aðferðir eða eitthvað svoleiðis og færa það inn í framtíðina. Að horfa svolítið til baka hvernig við vorum einu sinni miklu sjálfbærari en við erum í dag.“

Hægt er að hlusta á þáttinn Af hönnun, framtíðarrýni, handverki ... og von í spilaranum hér fyrir neðan. 

Hlaðvarpið DesignTalks talks er framleitt af Studio HönnunarMars og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Tæknimaður er Þorbjörn G. Kolbrúnarson og Halldór Eldjárn samdi stefið.


Tengdar fréttir

Mikill auður fólginn í því að samtvinna þekkingu í hönnun

„Ég held að það sé ótrúlega mikilvægt í allri hönnunarvinnu og bara vinnu yfir höfuð, að vera með samstarf og að hafa sem breiðastan hóp af fólki,“ segir vöruhönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir. Hún tekur meðal annars þátt í þriggja hönnuða mygluprentaraverkefni á HönnunarMars í ár.

„Samsuða af eftirvæntingu, spennu og gleði“

Í dag hófst HönnunarMars þrettánda árið í röð og í þetta sinn í maí. Sýningarstaðir HönnunarMars teygja sig vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið, allt frá Hafnartorgi og miðbæ, Granda, Vatnsmýri, Laugaveg, Hverfisgötu, Skeifu, Elliðaárstöð, Kópavog og Garðabæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×