Tíska og hönnun

Mikill auður fólginn í því að samtvinna þekkingu í hönnun

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Halldór Eldjárn og Valdís Steinars ræddu við Hlín Helgu Guðlaugsdóttur í fyrsta þættinum af HönnunarMars hlaðvarpinu DesignTalks talks. 
Halldór Eldjárn og Valdís Steinars ræddu við Hlín Helgu Guðlaugsdóttur í fyrsta þættinum af HönnunarMars hlaðvarpinu DesignTalks talks.  Studio HönnunarMars

„Ég held að það sé ótrúlega mikilvægt í allri hönnunarvinnu og bara vinnu yfir höfuð, að vera með samstarf og að hafa sem breiðastan hóp af fólki,“ segir vöruhönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir. Hún tekur meðal annars þátt í þriggja hönnuða mygluprentaraverkefni á HönnunarMars í ár.

„Að fá að setjast niður með kláru fólki og ræða hlutina það ýtir öllu svo miklu hraðar áfram. Hún segir að það geti verið að samtvinna þekkingu, eins og til dæmis hönnuðar og einstaklings með raungreinaþekkingu.“

Hlín Helga Guðlaugsdóttir hönnuður og stjórnandi DesignTalks ræddi við Valdísi og listamanninn Halldór Eldjárn í fyrsta þættinum af hlaðvarpinu DesignTalks talks.

Þátturinn fékk titilinn Af tilraunum, tækni, nýjum leiðum ... og trylltum áhuga. Um er að ræða fimm þætti sem allir verða birtir á Vísi og helstu hlaðvarpsveitum á meðan HönnunarMars stendur. Hlín tók algjörlega undir orð Valdísar um kosti samstarfs þegar kemur að hönnun.

„Það er ótrúlega mikill auður sem felst í því samtali og að þora að fara inn í þetta samstarf eða samruna hönnunar eða sköpunar og vísinda, raungreina og annað.“

Akkilesarhæll og gjöf

Halldór þekkir það vel að tefla saman fögum eins og forritun og tækni við sína sköpun. Eins og við höfum fjallað um hér á Vísi hefur Halldór til dæmis hannað tvær ólífrænar uppfinningar sem eru samt nálgun á lífræna hluti. Annars vegar tölvuknúna hengijurt sem að vex á pappírsstrimli eftir birtuskilyrðum og hins vegar vélknúinn teiknara, svokallaðan plotter, en í honum er japanskur burstapenni og inni í honum er krækiberjablek.

Sjá einnig: Fann upp plöntur sem þarf ekki að vökva

„Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á tækni og að lóða svona litlar rafrásir, “segir Halldór í þættinum.

„Ég fór í tölvunarfræði og lærði þar og safnaði í svolítið góðan verkfærakassa af alls konar. Ég hef ekki enst rosalega lengi í verkefnum tengdum tölvunarfræði eða forritunarverkefnum, þó að ég hafi vissulega tekið þau að mér, af því að það býr alltaf inni í mér að nota þessi tól á einhvern nýjan hátt.“

Hann nær því að búa til samvinnu hönnunar og forritunar eða tækni,  þó að hann sé ekki mikið að vinna með öðrum í sínum verkefnum.

„Það hefur verið minn akkilesarhæll, en líka gjöf, að ég er alltaf einhvern veginn að sjá eitthvað svona fyrir mér.“

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.  Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður hefur farið hefur óhefðbundnar leiðir í hönnun sinni. Halldór Eldjárn listamaður og vinnur með tónlist, forritun, vísindi og hönnun. Í þættinum ræða þau um sköpun, tilraunir, tækni, nýjar leiðir - og trylltan áhuga.

Hlaðvarpið DesignTalks talks er framleitt af Studio HönnunarMars og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Tæknimaður er Þorbjörn G. Kolbrúnarson og Halldór Eldjárn samdi stefið.


Tengdar fréttir

Fann upp plöntur sem þarf ekki að vökva

Listamaðurinn Halldór Eldjárn kynnir verk sín á HönnunarMars í næstu viku. Hann segir mikilvægt að halda líka utan um listamenn sem kjósa að fara ekki í hefðbundið listnám. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×