Swan­sea stóðst pressu Barnsl­ey og er komið í úr­slita­leikinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Grimes fagnar markinu sem hjálpaði Swansea í úrslitaleikinn.
Grimes fagnar markinu sem hjálpaði Swansea í úrslitaleikinn. Matthew Ashton/Getty

Það verða Swansea og Brentford sem mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Swansea var 1-0 yfir eftir fyrri leikinn og staða þeirra varð enn vænlegri er Matt Grimes kom þeim yfir á 39. mínútu.

Eftir fast leikatriði féll boltinn fyrir Grimes, sem lék á varnarmann Swansea og skrúfaði boltann í fjærhornið.

Því þurftu gestirnir að skora tvö mörk til þess að komast áfram en þeir jöfnuðu á 71. mínútu er Cauley Woodrow skoraði.

Barnsley pressaði á Swansea undir lokin en náðu þó ekki að koma boltanum í netið og lokatölur 1-1.

Það verða því Swansea og Brentford sem mætast í úrslitaleiknum á Wembley um næstu helgi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira