Tíska og hönnun

Bein útsending: Tölvuleikir sem hannaður hlutur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tölvuleikir verða ræddir á HönnunarMars í dag.
Tölvuleikir verða ræddir á HönnunarMars í dag.

Íslenskur leikjaiðnaður (IGI) og HönnunarMars taka höndum saman um að búa til örráðstefnu um tölvuleiki sem hannaðan hlut. Sýnt verður frá viðburðinum í streymi.

Örfyrirlestrarnir fara fram í Grósku frá 13 til 15 í dag og er enn hægt að skrá sig til að taka frá sæti.

Að búa til leik nær yfir breitt hönnunarróf, allt frá leikjahönnun til iðnhönnunar, frá reynsluhönnun til í að skapa heilan heim. Viðburðinn samanstendur af örfyrirlestrum og samtölum sem varpa ljósi á áhugaverðar áskoranir sem leikjaskaparar á Íslandi standa frammi fyrir.

Mælendur:

  • Didrik Steinsson and Björn Elíeser Jónsson – Stofnendur Porcelain Fortress – Building games now vs then
  • Börkur Eiríksson – Lead Artist, Mainframe – Designing for virtual worlds
  • Ægir Örn Ingvason – Art Director, Mussila – Creating a game in 6 weeks
  • Eugene Filchenko – Lead UX designer, CCP Games – Focus, attention as a resource
  • Gísli Konráðsson – Creative Director, Artic Theory – Building a new world

Viðburðastjóri er Bergur Finnbogason, Creative Director á EVE Online. Málstofan fer fram í Grósku, Bjargargötu 2 og verður streymt beint á netinu. Viðburðurinn verður á ensku.

Hægt verður að fylgjast með málþinginu í beinni útsendingu á Vísi í spilaranum hér fyrir neðan eftir að útsendingin hefst klukkan 13. 


Tengdar fréttir

Dagur þrjú á HönnunarMars

Þriðji dagur HönnunarMars 2021 er runninn upp og það er kominn föstudagur. Dagskrá dagsins í dag er að vanda fullhlaðin.

Mikill auður fólginn í því að samtvinna þekkingu í hönnun

„Ég held að það sé ótrúlega mikilvægt í allri hönnunarvinnu og bara vinnu yfir höfuð, að vera með samstarf og að hafa sem breiðastan hóp af fólki,“ segir vöruhönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir. Hún tekur meðal annars þátt í þriggja hönnuða mygluprentaraverkefni á HönnunarMars í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×