Tíska og hönnun

Framleiddu heimildarmynd um íslenska andann í heimi hönnunar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Marcos Zotes og Hrólfur Karl Cela, arkitektar hjá Basalt.
Marcos Zotes og Hrólfur Karl Cela, arkitektar hjá Basalt. Skjáskot

Í tilefni Hönnunarmars 2021 tóku Icelandair og Hönnunarmars höndum saman og framleiddu stutta heimildarmynd um íslenska andann í heimi hönnunar.

Þeir hönnuðir sem koma fram í myndinni eru Björn Steinar Blumenstein, Halldór Eldjárn, Hrólfur Karl Cela, Jón Helgi Hólmgeirsson, Magnea Einarsdóttir, Marcos Zotes, Valdís Steinarsdóttir og Ýr Jóhannsdóttir.

En hver er íslenski andinn? Er hann til? Til þess að komast að því skyggnumst við inn í hugarheim átta hönnuða úr ýmsum hornum greinarinnar og heyrum þau túlka íslenska andann og tilvist hans, hvar þau fá innblástur og hvernig þau taka af skarið. Við fáum innsýn í hvernig sjálfbærni er órjúfanlegur hluti vinnu þeirra og heyrum hugleiðingar um kraftinn, orkuna og tengingarnar sem okkur er svo tamt að beisla.

Heimildarmyndina má sjá hér að neðan en hún verður sýnd í sérstökum bíósal í stærsta rými HönnunarMars á Hafnartorgi reglulega yfir hátíðina. Viðburðinn má finna á dagskrá HönnunarMars undir yfirskriftinni  Why not? Designing the Spirit of Iceland.


Tengdar fréttir

„Samsuða af eftirvæntingu, spennu og gleði“

Í dag hófst HönnunarMars þrettánda árið í röð og í þetta sinn í maí. Sýningarstaðir HönnunarMars teygja sig vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið, allt frá Hafnartorgi og miðbæ, Granda, Vatnsmýri, Laugaveg, Hverfisgötu, Skeifu, Elliðaárstöð, Kópavog og Garðabæ.

Innblásin af sólinni, sundferðum og sumarævintýrum

„Nýja línan okkar er algjör gleðisprengja. Hún er innblásin af sólinni, strandpartýum, sundferðum og sumarævintýrum,“ segir hönnuðurinn Hildur Yeoman um línuna SPLASH! Sem hún sýnir á HönnunarMars í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×