Íslenski boltinn

Lof og last 2. um­­­ferðar: KA, rauða spjaldið á Hauk Pál, sam­staðan í Kefla­vík og margt fleira

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hallgrímur Mar [í miðri þvögunni] og Hrannar Björn [nr. 22] náðu vel saman í fyrsta sigri KA í Vesturbæ Reykjavíkur í 40 ár.
Hallgrímur Mar [í miðri þvögunni] og Hrannar Björn [nr. 22] náðu vel saman í fyrsta sigri KA í Vesturbæ Reykjavíkur í 40 ár. Vísir/Hulda Margrét

Annarri umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.

Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Lof

Hallgrímur Mar Steingrímsson

Eftir frekar rólegt tímabil á síðustu leiktíð minnti Hallgrímur Mar heldur betur á sig í sigri KA á KR. Hann skoraði tvö og lagði upp þriðja mark liðsins í 3-1 sigri. Hallgrímur lék úti vinstra megin og virðist það hafa hjálpað honum að hafa bróðir sinn Hrannar Björn í vinstri bakverðinum. 

Reikna má með að það sé formúla sem Arnar Grétarsson haldi sig við ef marka má frammistöðu þeirra bræðra og KA-liðsins í heild á föstudaginn var.

Nýliðarnir

Leiknismenn naga sig eflaust í handarbökin að hafa misst 3-1 forystu gegn Breiðabliki niður í jafntefli. Liðið er þó komið með tvö stig og hefur ekki enn tapað leik. 

Þá vann Keflavík góðan 2-0 sigur á Stjörnunni, þar með hafa nýliðar tímabilsins 2021 unnið jafn marga leiki og nýliðar síðustu leiktíðar. Grótta og Fjölnir komu upp og fóru lóðbeint niður aftur. Bæði lið léku 18 leiki, Grótta vann einn [gegn Fjölni] á meðan Fjölnir van ekki leik.

Það er enn mikið eftir af tímabilinu en frammistöður nýliðanna í ár hafa verið töluvert betri en við sáum á síðasta ári.

Samstaðan í Keflavík

Eins og áður sagði vann Keflavík góðan 2-0 sigur á Stjörnunni. Liðið komst yfir með umdeildri vítaspyrnu en aðalmaðurinn í þeirri sókn var ungur boltastrákur sem var einkar fljótur að hugsa eftir að Haraldur Björnsson kom út úr marki sínu. Samstaðan greinilega mikil suður með sjó og allir með á nótunum.

Síðari hálfleikur Vals

Íslandsmeistarar Vals voru manni færri og marki undir í hálfleik gegn FH í Kaplakrika. Í stað þess að falla enn aftar á völlinn og játa sig sigraða þá mættu leikmenn liðsins út á völl og sneru leiknum sér í hag. Sigurður Egill Lárusson jafnaði leikinn í 1-1 og á öðrum degi hefði Patrick Pedersen mögulega tryggt Valsmönnum stigin þrjú.

Frábær frammistaða hjá lærisveinum Heimis Guðjónssonar. Svo mikið lögðu menn á sig að Heimir nýtti allar fimm skiptingarnar sem honum standa tl boð. Það gæti verið dágóð stund þangað til það gerist á nýjan leik.

Valsmenn sneru bökum saman í síðari hálfleik og náðu í gott stig.Vísir/Hulda Margrét

Last

Haukur Páll Sigurðsson

Fyrirliði Valsmanna fékk beint rautt spjald þegar hann lét klæki Jónatans Inga Jónssonar hlaupa með sig í gönur. Jónatan Ingi var þá fyrir aukaspyrnu sem Haukur Páll ætlaði að taka snöggt. 

Er fyrirliðinn undirbjó sig að því virtist að sparka boltanum í Jónatan – til þess að hann fengi gult fyrir að vera fyrir – potaði Jónatan í boltann og Haukur sparkaði í FH-inginn. Verðskuldað rautt spjald niðurstaðan en Haukur hafði nægan tíma til að hætta við og Jónatan hefði fengið gult spjald hvort eð er fyrir að pota í boltann.

Veðrið upp á Skaga

Mönnum var tíðrætt um veðrið upp á Skipaskaga í 1-1 jafntefli ÍA og Víkings. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari gestanna, kom inn á það að leik loknum sem og leikmenn liðanna. Þá var sólin lágt á lofti og menn því í stökustu vandræðum með að sjá boltann þegar hann fór upp í háloftin.

Stjarnan

Ótrúleg atburðarrás átti sér stað í Garðabænum þar sem Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar til fjölda ára, sagði upp þegar aðeins ein umferð var búin. Ýmsar sögusagnir eru á kreiki varðandi af hverju Rúnar Páll sagði upp en í Garðabænum er þögnin ærandi.

Þorvaldur Örlygsson er nú aðalþjálfari liðsins en honum er enginn greiði gerður að taka við í aðstæðum sem þessum. Frammistaða liðsins gegn Keflavík endurspeglaði svo almennt slæma viku og ljóst að Þorvaldur þarf að fara djúpt í eigin reynslubanka til að finna lausnir á þeim vandamálum sem herja á Stjörnuliðið í dag.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: HK - Fylkir 2 - 2| HK krækti í jafntefli í blálokin

Jafntefli 2-2. Fylkir vann sinn fyrsta sigur í Pepsi Max deildinni þetta árið. Djair Terraii Carl Parfitt-Williams gerði bæði mörk Fylkis sem voru mjög sambærileg og bæði í upphafi hvers hálfleiks. Stefán Ljubicic minnkaði muninn í 1-2 með góðum skalla. Ásgeir Marteinsson kom inn á sem varamaður og jafnaði leikinn úr ótrúlegri aukaspyrnu frá löngu færi og niðurstaðan 2 -2 jafntefli. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×