Chelsea komið í úr­­slit Meistara­­deildar Evrópu í fyrsta sinn í sögu fé­lagsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Chelsea er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu.
Chelsea er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu. Chris Lee/Getty Images

Chelsea vann ótrúlegan 4-1 sigur á Bayern München í dag er liðin mættust í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Chelsea vinnur einvígið þar með 5-3 og er komið í úrslit gegn Barcelona.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Bæjara sem voru 2-1 eftir fyrri undanúrslitaleikinn.

Francesca Kirby kom Chelsea yfir strax á 11. mínútu en Sarah Zadrazil jafnaði metin fyrir Bayern með frábæru marki þegar rétt tæpur hálftími var liðinn af leiknum. 

Það stefndi allt í að staðan yrði 1-1 í hálfleik en Ji So-Yun kom Chelsea aftur yfir á markamínútunni frægu, 43. mínútu leiksins. Staðan 2-1 í hálfleik og ljóst að framlengja þyrfti ef það yrði lokatölur. 

Lengi vel stefndi í að leiknum myndi ljúka 2-1 en á 84. mínútu átti Jessica Carter aukaspyrnu inn á teig, Pernille Harder stakk sér fram fyrir alla og skallaði boltann í netið. Staðan orðin 3-1 og Chelsea á leiðinni í úrslit.

Pernille Harder skorar markið sem tryggði Chelsea í raun sæti í úrslitaleiknum.Catherine Ivill/Getty Images

Bayern sendi alla sína leikmenn fram í leit að jöfnunarmarki. Það gekk ekki og þegar uppbótartíminn var liðinn hreinsaði Chelsea fram á Kirby sem var á auðum sjó með opið mark fyrir framan sig þar sem Laura Benkarth, markvörður Bayern, hafði farið fram.

Kirby renndi boltanum í netið og skoraði þar með fjórða mark Chelsea sem og sitt annað mark í leiknum. Staðan orðin 4-1 og var leikurinn flautaður af áður en Bayern tók miðju. Chelsea því komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu þar það mætir Barcelona. 

Er þetta í fyrsta sinn sem Chelsea kemst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Chelsea er sem stendur á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, í 16-liða úrslitum FA-bikarsins, úrslitum Meistaradeildar Evrópu og búið að vinna deildarbikarinn. Ágætis tímabil hjá lærlingum Emmu Hayes.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira