Messi magnaður í sjöunda sigri Barcelona í röð

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Messi lék við hvurn sinn fingur í kvöld.
Messi lék við hvurn sinn fingur í kvöld. vísir/Getty

Barcelona er á miklu flugi í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta og fóru nokkuð létt með Alaves á Nývangi í kvöld.

Einn mest spennandi leikmaðurinn úr akademíu Börsunga um þessar mundir, hinn átján ára gamli Ilaix Moriba, var í fyrsta sinn í byrjunarliði liðsins í dag og hann lagði upp fyrsta mark leiksins þegar Trincao kom Börsungum í forystu eftir hálftíma leik.

Lionel Messi sá til þess að Barcelona færi með tveggja marka forystu í leikhlé þar sem hann skoraði í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Luis Rioja hélt gestunum inni í leiknum með marki á 54.mínútu en á síðasta stundarfjórðungi leiksins keyrðu Börsungar algjörlega yfir gestina.

Trincao bætti við öðru marki sínu þegar hann fylgdi á eftir skoti Messi og skömmu síðar bætti Messi við öðru marki sínu með frábæru skoti utan vítateigs.

Junior Firpo negldi síðasta naglann í kistu Alaves þegar hann batt enda á fallega sókn Börsunga á 80.mínútu og 5-1 sigur Barcelona staðreynd.

Þrátt fyrir sjö leikja sigurgöngu er Barcelona átta stigum á eftir toppliði Atletico Madrid en Barcelona lyfti sér upp í 2.sæti deildarinnar með sigrinum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira