Afhending Hönnunarverðlauna Íslands sýnd á Vísi á föstudag Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 27. janúar 2021 14:30 Tilnefningarnar til Hönnunarverðlauna Íslands verða tilkynntar hér á Vísi næstu daga. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs Hönnunarverðlaun Íslands árið 2020 verða afhent með rafrænum hætti föstudaginn 29. janúar klukkan 11.00. Á afhendingunni verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og einnig verður veitt viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2020.
Sýnt verður frá verðlaununum í streymi á samfélagsmiðlum og á Vísi. Að verðlaununum standa Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins. Það besta í hönnun og arkitektúr Í síðustu viku tilkynntum við þau verkefni sem hlutu tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands fyrir árið 2020. Að þessu sinni eru það Ýrúrarí fyrir Peysa með öllu, Studio Granda fyrir Drangar og Flothetta fyrir Flotmeðferð. Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Flotmeðferð eftir flothettu er tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands. Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Verðlaunin eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. Hönnuðir þurfa að vera félagar í einu af aðildarfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. Ný verk eru verk sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þremur árum fyrir afhendingu verðlaunanna. Framúrskarandi verk Hönnunarverðlaun Íslands eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur. Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt er fyrirtækjum sem hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina. Við val á verðlaunahafa er haft í huga að verið er að leita að framúrskarandi verki, eða safni verka, sem standa á sem fulltrúi þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkið/verkin þurfa að vera einstök, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu og fagmennsku í vinnubrögðum. Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands voru veitt í fyrsta skiptið árið 2019. Heiðursverðlaun er viðurkenning veitt einstaklingi sem þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi. Fyrsti handhafi heiðursverðlauna var Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt. Peysa með öllu eftir Ýrúrarí er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands. Dómnefndina í ár skipa: Sigríður Sigurjónsdóttir formaður, Hönnunarsafn íslands Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ Sigrún Unnarsdóttir, fatahönnuður MH&A Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A Paul Bennett, hönnunarstjóri IDEO, MH&A Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI Hörður Lárusson, grafískur hönnuður MH&A Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, LHÍ Hér fyrir neðan má kynna sér betur verkefnin sem tilnefnd eru til Hönnunarverðlauna Íslands 2020.
Tíska og hönnun Hönnunarverðlaun Íslands Tengdar fréttir Flotmeðferð eftir Flothettu tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Sjálfbærni, endurnýting, náttúra og vellíðan eru lykilorðin þegar kemur að tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Þriðju tilnefninguna til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 hlýtur verkefnið Flotmeðferð eftir Flothettu. 21. janúar 2021 08:31 Drangar eftir Studio Granda tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Sjálfbærni, endurnýting, náttúra og vellíðan eru lykilorðin þegar kemur að tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Tilnefningarnar verða allar tilkynntar hér á Vísi. 20. janúar 2021 08:31 Peysa með öllu eftir Ýrúrarí tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Sjálfbærni, endurnýting, náttúra og vellíðan eru lykilorðin þegar kemur að tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Tilnefningarnar verða tilkynntar hér á Vísi í dag og næstu daga. 19. janúar 2021 08:31 Mest lesið Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Lífið Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Lífið Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Lífið Grínari selur íbúð í Vesturbænum Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið Aron passaði varla inn í bílinn Lífið „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Lífið Fágæt og falleg eign við Flókagötu Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ „Martröð“ að spila í of síðu goth pilsi Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn „Vinkonur mínar eru allar með tölu mestu gellur landsins“ Forfallin húðumhirðuaðdáandi og sólarvarnarlögga Ekki sérlega litaglöð en glaðlynd að eðlisfari Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni Sársaknar sérhannaðrar úlpu: „Þetta er bara listaverkið mitt“ Best klæddu stjörnurnar á Óskarnum Sparks peysan og brúnkukremið eftirminnilegt tímabil Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi „Leyfðu öðrum að njóta lífsins og klæða sig eins og það vill“ Tískudrottingin Iris Apfel látin Sjá meira
Flotmeðferð eftir Flothettu tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Sjálfbærni, endurnýting, náttúra og vellíðan eru lykilorðin þegar kemur að tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Þriðju tilnefninguna til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 hlýtur verkefnið Flotmeðferð eftir Flothettu. 21. janúar 2021 08:31
Drangar eftir Studio Granda tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Sjálfbærni, endurnýting, náttúra og vellíðan eru lykilorðin þegar kemur að tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Tilnefningarnar verða allar tilkynntar hér á Vísi. 20. janúar 2021 08:31
Peysa með öllu eftir Ýrúrarí tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Sjálfbærni, endurnýting, náttúra og vellíðan eru lykilorðin þegar kemur að tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Tilnefningarnar verða tilkynntar hér á Vísi í dag og næstu daga. 19. janúar 2021 08:31