Messi og Cristiano hafa aldrei kosið hvorn annan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2015 22:05 Lionel Messi og Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi urðu enn á ný í tveimur efstu sætunum í kvöld þegar FIFA verðlaunaði besta knattspyrnumann heims með Gullboltanum. Cristiano Ronaldo vann annað árið í röð og Messi varð aftur að sætta sig við annað sætið. Lionel Messi vann Gullboltann fjórum sinnum í röð frá 2009 til 2012 en Ronaldo vann Gullboltann í fyrsta sinn árið 2008. Enginn annar leikmaður hefur því verið útnefndur besti knattspyrnumaður heims frá og með árinu 2008. Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa báðir atkvæðarétt í kjörinu, Ronaldo sem fyrirliði portúgalska landsliðsins og Messi sem fyrirliði argentínska landsliðsins. Enn á ný kusu þeir þó ekki hvorn annan í þessari kosningu en þeir hafa aldrei kosið hvorn annan. Þeir komast ekki einu sinni á topp þrjú hjá hvorum öðrum. Lionel Messi var með liðsfélaga sína í efstu þremur sætunum. Angel Di María var í 1. sæti hjá honum, Andrés Iniesta í öðru sætinu og Javier Mascherano í því þriðja. Cristiano Ronaldo var með Sergio Ramos í fyrsta sæti, Gareth Bale í öðru sæti og Karim Benzema í því þriðja en allir þessir leikmenn spila með Real Madrid. Gerardo Martino, landsliðsþjálfari Argentínu, var með þá Lionel Messi, Angel Di Maria og Javier Mascherano á sínum lista en Fernando Santos, þjálfari Portúgals var með þá Cristiano Ronaldo, Manuel Neuer og Arjen Robben á sínum lista.Lionel Messi og Cristiano Ronaldo.Vísir/Getty
Fótbolti Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Fleiri fréttir Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Sjá meira