Læknir Dave Grohl flutti lag á tónleikum Foo Fighters Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. júlí 2015 13:29 Hárprúði læknirinn rokkaði feitt í Fenway Park. Mynd/twitter
Bæklunarlæknar eru til alls líklegir, í það minnsta bæklunarlæknar stjarnanna eins og Dr. Lew Schon sannaði á nýafstöðnum tónleikum Foo Fighters í Fenway Park á dögunum. Dr. Schon er einn þeirra lækna sem önnuðust forsprakka sveitarinnar, Dave Grohl, eftir að hann hrundi af sviði fyrr á árinu með þeim afleiðingum að hann braut á sér hægri fótlegginn. Neyddist sveitin til að aflýsa fjölda tónleika í kjölfarið og hefur söngvarinn þurft að styðjast við hjólastól eða stærðarinnar hásæti á tónleikum Foo Fighters allar götur síðan. Alla jafna hafa skírskotanir í fótbrot forsprakkans vakið mikla lukku á tónleikum Foo Fighters en gera má ráð fyrir því að uppákoman á Fenway Park hafi sprengt öll met. Dr. Schon steig þá á stokk með sveitinni, ekki með tambórínu eða kúabjöllu í hönd heldur leiddi hann söng við lagið Seven Nation Army sem The White Stripes gerðu ódauðlegt hér um árið. Ef marka má viðbrögð áhorfenda og netmiðla leystist honum verkið vel úr (læknis)hendi en hlýða má á söng doktorsins hér að neðan.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira