Ísland í 7. sæti yfir þær þjóðir sem horfa hlutfallslega mest á klám Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. janúar 2016 18:33 Oftast var leitað að myndbandi Kim Kardashian. vísir/getty
Í gegnum tíðina hafa Íslendingar getað stært sig af því að vera ofarlega á fjölda heimslista sé litið til höfðatölu. Í dag bættumst við á enn einn slíkan topp tíu lista því sé litið til höfðatölu erum við í 7. sæti yfir þær þjóðir sem horfa mest á klám. Þetta er meðal þess sem lesa má úr árslista klámsíðunnar Pornhub. Í efstu tíu sætunum eru, auk Íslands, Bandaríkin og Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland, Bretland og Írland og Norðurlandaþjóðirnar Noregur, Svíþjóð og Danmörk. Á árinu 2015 var horft á 4.392.486.580 klukkustundir af klámi á síðunni Pornhub einni og sér. Það jafngildir rúmlega 500.000 árum. Til samanburðar þá kom tegundin homo sapiens sapiens fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um 200.000 árum. Flestar heimsóknir á síðuna koma frá Bandaríkjunum en Bandaríkin eru með fleiri heimsóknir en næstu þrjár þjóðir, Bretland, Indland og Kanada, til saman. Meðal Bandaríkjamaðurinn ver einnig næstlengstum tíma inn á síðunni eða tæpum tíu mínútum. Aðeins Filippseyingar endast lengur eða í tæpar þrettán. Kúbverjar, Mongólar og Kasakar endast hins vegar styst.Fjórði hver notandi kvenkyns Vinsælasta leit ársins var eftir lesbíuklámi en það velti leitarorðinu „teen“ (táningur) þar með úr sessi. Leitarorðið var meðal annars vinsælast í Bandaríkjunum, Ástralíu, Kanada og Íslandi. Rússar, Frakkar og Argentínumenn leita hins vegar mest að myndböndum sem innihalda endaþarmsmök. Þjóðverjar, Svíar, Pólverjar og Indverjar leita mest að táningum. Að meðaltali er einn fjórði af heimsóknum síðunnar frá kvenmönnum. Hæst er hlutfallið í Jamaíka, 44 prósent, og Níkaragva, Hondúras og Ekvador en þar eru tvær af hverjum fimm heimsóknum frá konum. Konur virðast leita mest að lesbíuklámi en það er vinsælasta leitarorð þeirra. Talsvert á eftir fylgir leit að þrekanti. Karlmenn leita oftast að stjúpmæðrum eða táningum. Athyglisverður munur er á milli kynjanna þegar litið leita tengdum myndböndum þar sem karlmaður veitir konu munnmök en konur leita 934 prósent oftar að slíkum myndböndum. Sú kona sem oftast var leitað að var raunveruleikastjarnan Kim Kardashian en hún hoppar upp um sjö sæti milli ára. James Deen vermir toppsætið karlamegin. Niðurstöður athugunarinnar má sjá í heild sinni hér. Þar má einnig sjá úr hvers kyns tækjum fólk skoðar síðuna, á hvaða aldursbili það er og hvaða dagar eru vinsælastir til áhorfs.
Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Fleiri fréttir „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Sjá meira