Hættan á tapi betri en of mikið eftirlit 2. nóvember 2011 07:00 Árni Páll Árnason segir að afskriftir krafna eigi að vera algengari í framtíðinni og tapsáhætta fjármálafyrirtækja meiri. Þannig verði almenningur best varinn af áföllum af starfsemi fjármálafyrirtækja.
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að auka þurfi tapsáhættu fjármálafyrirtækja. Ráðherrann talaði á haustráðstefnu KPMG, þar sem sjónum var beint að eftirliti. Árni Páll sagði að tapsáhættu fjármálafyrirtækja hefðu hingað til verið settar þröngar skorður. Íslenskt réttarumhverfi hefði takmarkað niðurfærslu krafna án gjaldþrotameðferðar að miklu leyti og einstaklingar hefðu verið settir undir mannfjandsamlega gjaldþrotalöggjöf. „Þar með hefur verið skapaður sá rammi að fjármálafyrirtækjum væri gert mjög auðvelt að sækja kröfur á hendur jafnt einstaklingum og fyrirtækjum.“ Ráðherrann sagði að undanfarin misseri hefði þessari umgjörð verið breytt í grundvallaratriðum. „Við verðum að venja okkur við það sem þjóð að afskriftir krafna eiga að vera algengari í framtíðinni og tapsáhætta fjármálafyrirtækja meiri. Það er besta leiðin til að verja almenning fyrir áföllum af starfsemi fjármálafyrirtækja, að auka tapsáhættu þeirra hvers um sig af eigin starfsemi. Þannig hvetjum við best til varkárni í rekstri þeirra og að þau axli sína samfélagslegu ábyrgð í rekstrinum.“ Árni Páll sagði ljóst að ekki væri hægt að hafa stjórn á fjármálamörkuðum í gegnum eftirlit. Takmörk séu fyrir því hverju hægt er að ná fram með reglum og eftirliti. „Við getum aldrei vænst þess að eyða áhættu úr fjármálakerfinu með því einu að hafa nógu marga í vinnu hjá opinberum eftirlitsstofnunum. Það er alveg sama hvað þeir láta sér detta í hug að byrgja marga brunna, nýsköpunargetan í fjármálakerfinu er eðli málsins samkvæmt svo mikil að það verða búnir til fleiri brunnar en eftirlitsaðilar geta látið sér detta í hug að byrgja.“ Árni Páll segir mikilvægt að leggja grunninn að heildstæðri sýn á fjármálamarkaði; hvað hverjum og einum sé ætlað að gera og hvernig hægt sé að tryggja að allir aðilar á markaðnum geti náð eins miklum árangri og mögulegt er, veitt þjónustu með eins litlum tilkostnaði fyrir almenning án óásættanlegrar áhættu. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Klukkan tifar og enn langt í land Erlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Fleiri fréttir Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Sjá meira