Tugir hafa látist í hitabylgju í Suður-Evrópu 26. júní 2007 16:22 Börn í Norður-Grikklandi kæla sig í gosbrunni MYND/AP
Samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar hafa að minnsta kosti 40 manns látist í hitabylgju sem gengur nú yfir Suður-Evrópu. Í Rúmeníu hafa 29 látist, fjórir í Grikklandi, þrír í Albaníu og að minnsta kosti fimm í Bosníu, Króatíu og Tyrklandi. Viðvörun vegna hitabylgjunnar var gefin út í Grikklandi og á Ítalíu í dag. Hitinn á sumum svæðum hefur farið upp í 46 gráður en venjulega er hann í kringum þrjátíu gráður á þessum árstíma. Vatnsból í Grikklandi hafa lækkað vegna hita og regnskorts og hefur það haft í för með sér mikinn skort á rafmagni. Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til þess ráðs að gefa opinberu starfsfólki frí hluta úr degi í dag og á morgun. Markmiðið er að reyna að draga úr rafmagnsnotkun og eins að leyfa fólki að vera heima á meðan mesti hitinn er. Yfirvöld í Tyrklandi hafa gripið til svipaðra aðgerða og víða hefur verið komið á fót sérstökum samkomustöðum fyrir heilsuveila þar sem loftkæling er næg. Einnig er biðlað til almennings að fara sparlega með rafmagn. Það er hæð yfir Miðjarðarhafi sem veldur hitabylgjunni og var hitamet slegið á Ítalíu í gær þegar hitinn í Amendola fór upp í 47 gráður. Búist er við að hitinn nái hámarki í dag og að bylgjan færist í austurátt á morgun.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Sjá meira