Fótbolti

Segja PSG vera tilbúið með boð í Pogba

Anton Ingi Leifsson skrifar
Pogba hefur lítið spilað í vetur.
Pogba hefur lítið spilað í vetur. vísir/getty

Frönsku meistararnir í PSG eru sagðir vera tilbúna með boð í franska landsliðsmanninn Paul Pogba. Það sem meira er að fyrrum leikmaður Man. United, Angel Di Maria, er boðinn í hina áttina í staðinn.

Óvíst er hvað verður um framtíð Pogba en hann hefur talað um það að hann vilji prufa eitthvað nýtt. Hann hefur einungis spilað níu leiki á leiktíðinni og er að jafna sig á ökklameiðslum sem hafa verið að aftra honum í vetur.

Calciomercato gremir frá því að PSG ætli að bjóða í Pogba en það sem meira er að þeir eru tilbúnir að bjóða Angel Di Maria og Julian Draxler í staðinn auk þess að leggja væna summu á borðið. Ólíklegt er þó að Argentínumaðurinn sé tilbúinn að fara aftur á Old Trafford eftir að hafa spilað þar tímabilið 2014/2015.

Pogba á einungis eitt ár eftir af samningi sínum og gæti United freistast til þess að reyna selja Pogba í sumar til þess að missa hann ekki frítt næsta sumar. Real Madrid og Juventus, fyrrum félag Pogba, hefur verið nefnt til sögunnar en nú eru frönsku meistararnir sagðir komnir inn í myndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×