Farið fram á rannsókn á hitakosningum í Alabama Kjartan Kjartansson skrifar 8. janúar 2019 13:39 Moore var umdeildur frambjóðandi en ásakanir um kynferðislegt samband hans við táningsstúlkur riðu framboði hans að fullu. Vísir/Getty
Dómsmálaráðherra Alabama-ríki í Bandaríkjunum hefur alríkisskjörstjórn um að rannsaka ásakanir um að ófrægingarherferð gegn umdeildum frambjóðanda repúblikana hafi haft áhrif á úrslitin. Hópur sem er hliðhollur demókrötum er sagður hafa beitt misvísandi fullyrðingum á samfélagsmiðlum í aðdraganda kosninganna sem demókratar unnu óvænt. Alabama er eitt íhaldssamasta ríki Bandaríkjanna og hafa repúblikanar getað gengið að þingsætum þar vísum undanfarna áratugi. Ásakanir um Roy Moore, frambjóðandi repúblikana, hefði átt í kynferðislegu sambandi við ungar stúlkur umturnuðu hins vegar kosningabaráttunni um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings í desember árið 2017. Á endanum hafði Doug Jones, frambjóðandi demókrata, nauman sigur. Nýlega komu fram ásakanir um að hópur sem styður demókrata hafi beitt bellibrögðum í kosningabaráttunni, ekki ósvipuðum þeim sem útsendarar Rússa notuðu til þess að hjálpa Donald Trump að sigra í forsetakosningunum árið áður. Hópurinn hafi meðal annars stofnað Facebook-síðu þar sem því var ranglega haldið fram að stuðningsmenn Moore vildu banna áfengi í ríkinu. Önnur síða sem hópurinn stofnaði var látin líta út fyrir að tengjast Moore og að hann væri studdur af rússneskum bottum. Steve Marshall, nýkjörinn dómsmálaráðherra Alabama og repúblikani, segist hafa áhyggjur af þeim brögðum sem var beitt í kosningabaráttunni. Hann hefur því óskað eftir rannsókn á kosningunum, að sögn Reuters-fréttastofunnar.
Bandaríkin Tengdar fréttir Rauk úr viðtalinu eftir að „barnaníðingatækið“ fór að pípa Ný stikla úr sjónvarpsþáttaröðinni Who Is America? var birt í dag. Þáttaröðin er það nýjasta úr smiðju grínistans Sacha Baron Cohen en hann hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið fyrir að narra hina ýmsu ráðamenn í viðtöl. 30. júlí 2018 13:30 Biður um styrki til að standa straum af lögfræðikostnaði vegna kynferðisbrots Roy Moore, sem beið ósigur í þingkosningunum í Alabama í desember síðastliðnum, biðlar nú til almennings um fjárhagsaðstoð. 4. mars 2018 08:06 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira
Rauk úr viðtalinu eftir að „barnaníðingatækið“ fór að pípa Ný stikla úr sjónvarpsþáttaröðinni Who Is America? var birt í dag. Þáttaröðin er það nýjasta úr smiðju grínistans Sacha Baron Cohen en hann hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið fyrir að narra hina ýmsu ráðamenn í viðtöl. 30. júlí 2018 13:30
Biður um styrki til að standa straum af lögfræðikostnaði vegna kynferðisbrots Roy Moore, sem beið ósigur í þingkosningunum í Alabama í desember síðastliðnum, biðlar nú til almennings um fjárhagsaðstoð. 4. mars 2018 08:06