Hlaupa til styrktar MS-félaginu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 13. júlí 2013 07:00 Anna Sigríður, Christine og María hlaupa í fimm klukkustundir á dag án þess að stoppa.
Ofurhlaupararnir Anna Sigríður Sigurjónsdóttir og vinkonur hennar, þær Christine Bucholz og María Jóhannesdóttir, hlaupa nú norður Kjöl og suður Sprengisand til styrktar MS félaginu. Anna hefur verið með hugmyndina í kollinum síðastliðin tvö ár, þar sem sjúkdómurinn tengist henni persónulega. Greindist systir hennar með hann fyrir átján árum. Þetta segir Sólveig M. Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi hópsins, en hún fylgir þeim stöllum eftir á ferð þeirra. „Veðrið hefur ekki leikið við þær og því hefur ekki verið skemmtilegt að tjalda. En það hefur alls staðar verið tekið svakalega vel á móti okkur og við höfum fengið fría gistingu,“ segir hún glöð í bragði. „Anna Sigríður vill að það náist inn fimm milljónir,“ segir Sólveig en segist ekki gera sér neina grein fyrir því hvað safnast hafi nú þegar. „MS félagið hefur þá ósk að eyrnamerkja þennan sjóð sem safnast í að gefa fólki tækifæri til að ferðast.“ Stöllurnar hlaupa um fimm klukkustundir á dag án þess að nema staðar. „Þær rétt stoppa til að drekka vatn, varla hægt að kalla það stopp,“ segir Sólveig. Söfnunarhlaupinu lýkur 15. júlí þegar þær hlaupa inn í hálendismiðstöðina Hrauneyjar. Verða þær þar um fjögurleytið. Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira