Rúnar rekinn frá Lokeren Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2017 13:00 Rúnar Kristinsson. Vísir/Getty
Rúnar Kristinsson var í dag rekinn sem þjálfari belgíska úrvalsdeildarfélagsins Sporting Lokeren. Rúnar var þjálfari liðsins í aðeins níu mánuði. Peter Maes mun taka við starfi Rúnars en hann var þjálfari Lokeren frá 2010 til 2015. Peter Maes hefur þegar skrifað undir þriggja ára samning. Maes verður kynntur fyrir blaðamönnum á morgun klukkan 17.00 að belgískum tíma. Þetta kemur allt fram á heimasíðu Lokeren. Rúnar tók við liði Lokeren af Georges Leekens 28. október 2016. Hann var því búinn að vera með liðið í rúma níu mánuði. Á heimasíðu Sporting Lokeren er haft eftir forseta félagsins að Rúnari hafi skilað góðu starfi á síðustu leiktíð. Það sé honum að þakka að liðið náði að halda sér í deildinni. Félagið þakkar Rúnari fyrir sitt starf og vonast til að hann haldi áfram þjálfaraferli sínum. Sporting Lokeren er búið að spila tvo leiki á þessu tímabili og liðið tapaði þeim báðum. Lokeren á enn eftir að skora fyrsta mark tímabilsins en markatalan er 0-5 eftir 1-0 tap á móti KV Kortrijk og 4-0 tap á móti Club Brugge. Tapleikurinn á móti KV Kortrijk var síðasti leikurinn undir stjórn Rúnars. Þetta er í annað skiptið á innan við ári sem Rúnar missir starfið sitt sem knattspyrnuþjálfari en hann var látinn fara sem þjálfari norska félagsins Lilleström um miðjan september 2016 eða fyrir tæpum ellefu mánuðum síðan.
Fótbolti Mest lesið Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Fótbolti Mattías Kjeld valdi KR Íslenski boltinn Ísland - Frakkland | Mikilvægur leikur fyrir EM Fótbolti Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Handbolti Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Ísland - Frakkland | Mikilvægur leikur fyrir EM Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Arnar og Orri sátu fyrir svörum daginn fyrir fyrsta leik Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Kominn fram úr Zlatan og Ronaldo Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt „Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“ Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“ Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Klopp og Xavi sættust á stig Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Kósovó - Írland 1-0 | Heimir og félagar byrja á tapi í Kosovo Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Sjá meira