Evrópuþingið vill að Bandaríkjamenn þurfi vegabréfaáritanir 2. mars 2017 16:00
Þingmenn á Evrópuþinginu ályktuðu í dag að Bandaríkjamenn ættu að þurfa vegabréfaáritanir til að ferðast til Evrópu. Með þessu vilja þingmennirnir bregðast við því að bandarísk stjórnvöld undanskilji borgara fimm Evrópulanda frá því að ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfaáritunar. Ályktunin felur í sér að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stöðvi frjálsar ferðir Bandaríkjamanna til Evrópu innan tveggja mánaða. Framkvæmdastjórnin hefur enn ekki gripið til aðgerða þrátt fyrir að Bandaríkin heimili ekki borgurum Búlgaríu, Króatíu, Kýpur, Póllands og Rúmeníu að koma til landsins án vegabréfaáritunar eins og aðrir þegnar Evrópusambandsríkja geta gert. Bandaríkjamenn geta hins vegar, enn sem komið er, ferðast til allra Evrópusambandsríkja án vegabréfaáritunar. Samkvæmt reglum ESB hefði framkvæmdastjórnin átt að binda enda á ferðir Bandaríkjamanna til Evrópu án vegabréfaáritunar innan tveggja ára eftir að Bandaríkjunum var tilkynnt um mótaðgerðirnar. Tilkynning þess efnis var send í apríl árið 2014. Með ályktuninni í dag reyna Evrópuþingmenn því að setja þrýsting á framkvæmdastjórnina um að koma málinu á hreyfingu. Embættismaður framkvæmdastjórnarinnar segir við Reuters-fréttastofuna að viðræður standi enn yfir við bandarísk stjórnvöld um að þau veiti öllum ESB-borgurum undanþágu frá vegabréfaáritunum. Framkvæmdastjórnin hefur varað við því að með því að fella niður undanþágu bandarískra borgara á vegabréfaáritunum gæti viðskiptahagsmunum, ferðamennsku og evrópskum hagkerfum verið stefnt í hættu.
Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Sjá meira