Fótbolti

„Maður er þakklátur fyrir að fá að spila“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ásgerður Stefanía getur ekki beðið eftir því að komast aftur út á völl.
Ásgerður Stefanía getur ekki beðið eftir því að komast aftur út á völl. Sportpakkinn/Skjásot

Jákvæðar fréttir bárust fyrir helgi en talið er að Pepsi Max deild karla og kvenna geti hafist um miðjan júní. Leikmenn liðanna leggja því allt kapp á að vera í sem bestu formi þegar liðin geta hafið æfingar á ný.

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, leikmaður Íslandsmeistara Vals, segir leikmenn Hlíðarendaliðsins í góðum málum og er almennt þakklát fyrir að mótið fari fram. 

Þetta kom fram í Sportpakkanum Stöðvar 2 í kvöld en Ásgerður Stefanía, eða Adda eins og hún er oftast kölluð, ræddi við Júlíönu Þóru Hálfdánardóttur um ástandið vegna kórónufaraldursins.

Viðtalið má sjá í spilaranum neðst í fréttinni.

„Við erum vel sett hjá Val. Við erum með ofboðslega færan þrekþjálfara sem sér um að halda okkur í standi, erum með mæla frá honum þannig það gengur vel. Við búum hérna nokkrar saman í nágrenni við hvor aðra svo við hittumst og hlaupum saman ásamt því að lyfta,“ sagði Adda þegar Júlíana heimsótti hana í dag.

„Að sjálfsögðu,“ sagði Adda kímin aðspurð hvort það væru ekki örugglega tveir metrar á milli leikmanna þegar þær hittust.

„Við vissum ekki hvort mótið yrði og maður er þakklátur fyrir það að fá að spila. Ég vorkenni körfubolta- og handboltafólkinu þar sem mótið var bara blásið af,“ sagði hún að lokum.

Klippa: Adda segir leikmenn Vals vera í góðum málum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×