Sport

For­eldrar fá ekki að vera við­staddir æfingar og frí­stunda­starf

Sylvía Hall skrifar
Stefnt er að því að tryggja tómstundastarf barna sem fædd eru 2005 og seinna.
Stefnt er að því að tryggja tómstundastarf barna sem fædd eru 2005 og seinna. Vísir/HAnna

Ákveðið hefur verið að auka aðgát í íþróttahúsum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og grípa til frekari sóttvarna vegna fjölgunar smita í samfélaginu. Því munu foreldrar og forráðamenn ekki fá að vera viðstaddir æfingar og frístundastarf barna sinna næsta hálfa mánuðinn.

Þetta er niðurstaða fundar stjórnenda íþróttastarfs sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins í gær. Einnig verður starfsemi sem ekki tengist íþróttahúsunum óheimil. Ráðstafanirnar gilda til 12. október.

„Mælt er með því að stjórnendur íþróttahúsa og frístundastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu sem ekki fellur undir sveitarfélögin gera slíkt hið sama. Tekið er fram að tilgangurinn er ekki að raska íþróttastarfi né keppnum barna, heldur að halda því gangandi,“ segir á vef Ungmennafélags Íslands.

Á vef Ungmennafélagsins segir að fjölgun smita hafi mikil áhrif á skólasamfélagið, enda hafi heilu árgangarnir þurft í sóttkví og skólar jafnvel þurft að loka. Það sé ekki hægt að líta fram hjá þeirri alvarlegu stöðu sem nú sé uppi og grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að skóla- og tómstundastarf haldist óskert.

„Til að svo megi vera þarf að grípa til aukinna ráðstafana og færa ákveðnar fórnir og við ætlum okkur svona í fyrstu að vera það bjartsýn horfa til 12. október með fyrirvara um þróun mála hvað varðar frekari smit á okkar svæði.‟

Á meðal þeirra ráðstafana sem gripið er til er eftirfarandi:

  • Foreldrar og forráðamenn séu ekki viðstödd æfingar og frístundastarf barna.
  • Hafi börn ekki þroska eða aldur til að vera ein í íþróttatíma t.d. íþróttaskóli barna þá fellur sá tími niður.
  • Foreldrar og forráðamenn fylgi fyrirmælum um innkomu inn í íþróttasalina.
  • Starfsemi sem ekki tengist íþróttahúsunum sé ekki leyfð t.d. íþróttastarf fullorðinna sem ekki tilheyrir ÍSÍ.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×