Íslenski boltinn

Hamrén: Stuðningurinn getur ráðið úrslitum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erik Hamrén er á leið í sinn stærsta leik sem þjálfari íslenska landsliðsins.
Erik Hamrén er á leið í sinn stærsta leik sem þjálfari íslenska landsliðsins. vísir/sigurjón

Erik Hamrén segist aldrei hafa getað valið eins sterkan hóp síðan hann tók við íslenska karlalandsliðinu í fótbolta haustið 2018. Eini leikmaðurinn sem Hamrén gat ekki valið í hópinn fyrir leikina gegn Rúmeníu, Danmörku og Belgíu er Hólmbert Aron Friðjónsson sem er meiddur. 

„Að sjálfsögðu er ég ánægður. Þetta er sterkur hópur sem býr yfir mikilli reynslu og miklum hæfileikum,“ sagði Hamrén í samtali við Vísi eftir blaðamannafundinn þar sem landsliðshópurinn var kynntur.

Birkir Már Sævarsson kemur aftur inn í landsliðið en hann hefur ekki leikið keppnisleik með því síðan í mars 2019.

„Við teljum að hann sé góður fyrir hópinn í þessum leikjum. Við þurfum alltaf að líta á það hverjum við mætum og hvaða möguleika við höfum,“ sagði Hamrén. „Birkir hefur leikið vel í Pepsi Max-deildinni, býr yfir mikilli reynslu og þess vegna völdum við hann.“

Hann getur skipt sköpum

Jóhann Berg Guðmundsson hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur en Hamrén vonast til að geta nýtt krafta hans í landsleikjunum sem framundan eru.

„Það eru jákvæð teikn á lofti. Hann hefur æft á fullu með sínu liði [Burnley] í þessari viku en ég veit ekki hvort hann spilar með því á morgun. Ég talaði við knattspyrnustjórann [Sean Dyche] og hann segir að Jóhann líti vel út. En hann mun ekki spila alla þrjá leikina í þessari landsleikjatörn,“ sagði Hamrén.

„Ég er ánægður að hann geti komið og hann hlakkar mjög til þess. Það er gott því við vitum hversu góður hann er og hann getur skipt sköpum.“

Þrír leikir á sjö dögum

Ísland mætir Rúmeníu í umspili um sæti á EM 8. október, Danmörku í Þjóðadeildinni 11. október og Belgíu í sömu keppni þremur dögum síðar. Framundan eru því þrír leikir á sjö dögum og Hamrén segir ljóst að hann verði að nýta hópinn sem hann valdi í dag vel.

„Það er áskorun. Við verðum að taka stöðuna eftir hvern leik. En auðvitað verða fleiri leikmenn en Jóhann sem spila ekki alla þrjá leikina, t.d. Aron [Einar Gunnarsson]. Við sömdum við félagið hans [Al Arabi] að hann myndi spila gegn Rúmeníu og kannski gegn Danmörku.“

Stuðningurinn skiptir máli

Í gær bárust fréttir af því að takmarkaður fjöldi áhorfenda mætti mæta á landsleikina í þessum mánuði. Hamrén segir það skipta miklu máli jafnvel þótt stúkan á Laugardalsvelli verði ekki þétt setin.

„Ég er mjög ánægður og sömu sögu er að segja af leikmönnunum. Við vitum hversu góðir stuðningsmennirnir eru. Við sjáum núna, þegar engir áhorfendur eru á leikjum, hversu miklu máli stuðningur skiptir. Árangur liða á heimavelli er ekki jafn góður og venjulega,“ sagði Hamrén.

„Ég býst við að fá góðan stuðning. Það er svo lítið sem skilur á milli í svona leikjum og stuðningsmennirnir geta ráðið úrslitum.“

Með góða tilfinningu fyrir leiknum

Svíinn kveðst bjartsýnn fyrir leikinn gegn Rúmeníu sem er hans stærsti síðan hann tók við landsliðinu.

„Ég er með góða tilfinningu fyrir leiknum og það er góð byrjun. Þetta er 50-50 leikur. Þeir eru sterkir og fyrir ofan okkur á heimslistanum. Allir á Íslandi gera ráð fyrir að við vinnum en allir í Rúmeníu búast við sigri sinna manna,“ sagði Hamrén.

„Ég er bjartsýnn. Liðið sem mun ekki gera stór mistök og verður skilvirkara mun vinna þennan leik. Það gæti verið að Tólfan okkar skipti sköpum.“

Klippa: Viðtal við Erik Hamrén

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×