Fótbolti

Sout­hgate: Heppnir að fara ekki héðan að­eins með eitt stig

Smári Jökull Jónsson skrifar
Grímubúinn Southgate á Laugardalsvelli í kvöld.
Grímubúinn Southgate á Laugardalsvelli í kvöld. vísir/getty

„Mér fannst leikurinn þróast eins og við áttum von á. Íslenska liðið er sterkt varnarlega og erfitt að brjóta þá á bak aftur. Það er alltaf hætta á skyndisóknum og í föstum leikatriðum,“ sagði Gareth Southgate þjálfari Englendinga í viðtali við Henry Birgi Gunnarsson eftir leikinn gegn Íslandi í dag.

„Ég var ánægður með hvernig við byrjuðum leikinn. Eftir 20 mínútur skoruðum við mark sem líklega hefði átt að standa og það hefði auðvitað breytt flæði leiksins. Síðan sá maður að okkur skorti leikæfingu á síðasta þriðjungi vallarins, það vantaði upp á gæði síðustu sendingarinnar,“ bætti Southgate við en Englendingar voru mikið með boltann en vörn Íslands stóð vaktina vel.

Kyle Walker fékk rautt spjald á 71.mínútu þegar hann fékk sitt annað gula spjald eftir klaufalega tæklingu úti á velli.

„Í seinni hálfleik byrjuðum við vel og vorum með yfirhöndina. Rauða spjaldið breytti öllu og breytir taktinum. Við vorum ennþá sterkari aðilinn eftir breytingarnar sem við gerðum og héldum áfram að sækja. Það leit út fyrir að við myndum sækja sigur eftir vítið en við vorum auðvitað heppnir að þeir nýttu ekki sína vítaspyrnu.“

„Íslendingar fara sjálfsagt af velli með þá tilfinningu að þeir hefðu átt að ná jafntefli. Þegar á heildina er litið vorum við betra liðið en þegar upp er staðið erum við heppnir að fara ekki héðan með aðeins eitt stig.“

Southgate hafði lítið út á serbneska dómarann en nefndi þó að mark sem Harry Kane skoraði í fyrri hálfleik hefði átt að standa en það var dæmt af vegna rangstöðu.

„Mér fannst báðar vítaspyrnurnar rétt dæmdar og rauða spjaldið sömuleiðis. Það eina sem ég ákvörðunin sem ég er ósáttur með var markið sem var dæmt af en það er erfitt að sjá það án VAR.“

Southgate sagði að erfitt væri að ræða um hvort frammistaða liðsins hefði verið góð í ljósi þess að leikmenn enska liðsins eru flestir nýbyrjaðir að æfa á ný með félagsliðum sínum eftir stutt sumarfrí.

„Mér finnst erfitt að meta frammistöðuna því leikmenn hafa ekki leikið marga leiki og ekki æft mikið. Það er óraunhæft að ætlast til þess að leikmenn nái að leika af fullri getu. Það mikilvæga var að vinna og við rétt náðum því,“ sagði Gareth Southgate að lokum.

Klippa: Viðtal við Gareth Southgate

Tengdar fréttir

Guðlaugur Victor: Vörðumst eins og kóngar

,,Ég er svona hálf orðlaus einhvernveginn. Eftir þessa liðsheildarframmistöðu, að fá þessa dramatík í endann, fyrst fá þeir víti og svo klúðrum við víti, varð maður hálf svekktur og svo aftur ánægður og svo enn þá meira svekktur. Þannig þetta er mjög erfitt,‘‘ sagði Guðlaugur Victor Pálsson eftir leikinn.

Vissi að Birkir hefði ekki tekið víti í nokkur ár

Jordan Pickford, landsliðsmarkvörður Englands, viðurkennir að hann hafi haft heppnina með sér að Ísland skyldi ekki ná að jafna úr vítaspyrnu í uppbótartíma á Laugardalsvelli í kvöld.

Umfjöllun: Ísland 0-1 England | Strákarnir misstu af góðu tækifæri

Baráttuglatt lið Íslands tapaði með sárgrætilegum hætti gegn Englandi, 1-0, með marki Raheem Sterling í lokin á fyrsta leik liðanna í Þjóðadeildinni, á Laugardalsvelli. Englendingar voru manni færri í 20 mínútur og Ísland fékk víti í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×