Innlent

Reykræstu eftir að loftpressa brann yfir

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kaupangur.
Kaupangur. Vísir/Tryggvi Páll

Slökkviliðið á Akureyri var kallað út í morgun vegna reyks sem myndaðist í geymslu við Kaupang, verslunarhúsnæði á Akureyri.

Í samtali við Vísi segir Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjórinn á Akureyri, að loftpressa hafi brunnið yfir um. Enginn eldur kom upp en töluverður reykur myndaðist. Reykræsting gekk greiðlega.

Kaupangur er á Brekkunni og hýsir fjölmargar verslanir og þjónustufyrirtæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×