Enski boltinn

United gæti verið án fyrirliðans í granna­slagnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Harry Maguire er á meiðslalistanum.
Harry Maguire er á meiðslalistanum. vísir/getty

Óvíst er hvort að Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, verði klár í slaginn fyrir grannaslaginn gegn Manchester City um helgina.

Maguire var ekki í leikmannahópi United í gær sem vann 3-0 sigur á Derby í enska bikarnum en hann meiddist á æfingu.

„Ég sagði við hann fyrir æfinguna að ég ætlaði ekki að hvíla hann en svo snéri hann upp á ökklann svo hann varð að vera heima,“ sagði Solskjær í samtali við MUTV.

„Vonandi verður hann klár fyrir helgina en ég er ekki viss.“







Maguire setti sjálfur á Twitter þar sem hann greindi frá því að hann myndi missa af leik gærkvöldsins og óskaði félögum sínum góðs gengis.

Það gekk eftir en United vann 3-0 sigur og er komið áfram í 8-liða úrslit enska bikarsins.







United er í 5. sæti deildarinnar með 42 stig en City er í öðru sætinu með 57.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×