Juventus endurheimti toppsætið með öruggum sigri á Inter

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Engir áhorfendur á stórleik kvöldsins á Ítalíu.
Engir áhorfendur á stórleik kvöldsins á Ítalíu. vísir/getty

Juventus endurheimti toppsæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með því að leggja Inter Milan að velli með tveimur mörkum gegn engu að viðstöddu fámenni á Juventus leikvangnum í kvöld en engum áhorfendum var hleypt inn á völlinn af ótta við útbreiðslu kórónaveirunnar.

Fyrri hálfleikur var markalaus þó heimamenn hafi verið betri aðilinn.

Síðari hálfleikur var aðeins tíu mínútna gamall þegar Aaron Ramsey kom heimamönnum í forystu eftir darraðadans í vítateig Inter.

Tólf mínútum síðar sýndi varamaðurinn Paulo Dybala snilli sína þegar hann lék sér að Ashley Young í tvígang áður en hann kláraði færið sitt frábærlega með utanfótar skoti.

Lokatölur 2-0 fyrir Juventus sem hefur eins stigs forystu á Lazio þegar tólf umferðum er ólokið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira