Íslenski boltinn

Brandenburg bjóst við sterkum viðbrögðum við nýja merkinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nýtt merki landsliða KSÍ verður á nýju landsliðsbúningi.
Nýtt merki landsliða KSÍ verður á nýju landsliðsbúningi. vísir/daníel

Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg, segist hafa átt von á því að nýtt merki KSÍ, sem Brandenburg hannaði, fengi sterk viðbrögð.





Ragnar ítrekar að merkið sem var kynnt í dag sé aðeins merki KSÍ, ekki merki landsliða Íslands sem fer á landsliðsbúninginn. Hann vildi þó ekkert gefa upp hvernig það merki yrði.

„Við áttum von á allavegana viðbrögðum. Við vissum alltaf að það yrði mikil dramatík þegar í kringum kynningu á nýju merki fyrir KSÍ. Það eru svo miklar tilfinningar í gangi í fótboltanum. Svo fer oft í gang Evrópukeppni í að setja út á og finna að. Það er lenskan hérna á Íslandi,“ sagði Ragnar í samtali við Vísi í dag.

Vilja búa til sterkt vörumerki
Fulltrúar Brandenburgar og KSÍ. Ragnar er fjórði frá vinstri á myndinni.mynd/brandenburg

„Það fyrsta er að kynna nýtt merki. Svo á fólk eftir að sjá allt heildarsamhengið, hvernig merkið verður notað. Það er líka ákveðinn misskilningur í gangi. Verið er að kynna nýja og breytta stefnu. Þetta er merki sambandsins og nýtt landsliðsmerki verður svo kynnt á næstunni.“

Knattspyrnusamband Íslands hefur hingað til alltaf verið með eitt merki. En af hverju var ákveðið að hafa merkin tvö að þessu sinni?

„Hjá mörgum öðrum löndum er þetta tvískipt. Fyrst og fremst þarf KSÍ formlegt merki fyrir sína starfsemi. Varðandi merki landsliða er meira horft til þess að skapa sterka ásýnd og búa til sterkt vörumerki sem hægt er að nýta í markaðslegum tilgangi,“ sagði Ragnar.

„Þetta er partur af nýrri stefnu og fólk verður aðeins að halda í sér þangað til landsliðsmerkið verður kynnt. Þá sér fólk samhengið betur.“

Elsta merkið gæti fengið nýtt hlutverk
Mörgum þykir elsta merki KSÍ afar fallegt.

Mikill söknuður virðist vera af elsta KSÍ-merkinu, sem má sjá hér fyrir ofan. Ragnar segir að það hafi ekki komið til greina að hanna nýju KSÍ eftir því elsta og slá þar með á strengi fortíðar.

„Það er merki er barn síns tíma en mjög fallegt. Það verður hugsanlega notað á einhverjum „retro“ varningi. Það gæti verið skemmtilegt sem sér lína með tilvitnun í gamla tíma,“ sagði Ragnar.

„Nýtt merki þarf að lúta allt öðrum lögmálum. Við erum að horfa til framtíðar, nýtt merki þarf að endurspegla nútímann og ganga á þeim miðlum sem við notum í dag.“

Lögðust í mikla rannsóknarvinnu
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, í ræðustól. Fyrir aftan hann sést gamla merki KSÍ.mynd/ksí

En hvernig fer vinna við að hanna nýtt landsliðsmerki fram?

„Það er allt tekið til skoðunar. Við höfum litið í kringum okkur, hvernig þróunin er og í hvaða átt önnur lönd eru að stefna. Við lögðumst í óhemju mikla rannsóknarvinnu, að skoða nánast hvert einasta merki hjá landsliðum og félagsliðum líka. Út frá þessari rannsóknarvinnu skoðuðum við nokkrar mismunandi leiðir sem voru svo kynntar fyrir KSÍ. Lokaniðurstaðan var svo þetta val sem verður kynnt á næstunni,“ sagði Ragnar.

„Það stóð alltaf til að hafa merki sambandsins frekar einfalt og gott í notkun. Meginfókusinn var á landsliðsmerkið sem uppfyllti skilyrði KSÍ.“

Verður allt að passa saman
Nýr landsliðsbúningur verður kynntur á vordögum.vísir/vilhelm

Ragnar segir að Brandenburg muni ekki koma að hönnum nýja landsliðsbúningsins. Það sé á könnu íþróttavöruframleiðandans.

„Það er bara aðilinn sem framleiðir búninginn en auðvitað tekur þetta mið af þeim áherslum sem búið er að kynna fyrir þeim. Þetta verður allt að passa saman,“ sagði Ragnar.

Hann segir viðbúið að fólk myndi hafa skoðun á nýju merki KSÍ. Fátt komi blóðinu meira af stað en fótbolti.

„Það eru spennandi tímar framundan. Við bjuggumst alveg við því að fólk hefði sterka skoðun á þessu máli,“ sagði Ragnar að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×