Táningurinn skoraði tví­vegis eftir stoð­sendingu meistarans

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi og Fati fagna í kvöld.
Messi og Fati fagna í kvöld. vísir/getty

Barcelona minnkaði forskot Real Madrid niður í þrjú stig á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Levante á heimavelli í kvöld.

Bæði mörkin skoraði hinn sautján ára gamli Ansu Fati sem fékk tækifæri í byrjunarliði Barcelona í kvöld.

Fyrra markið skoraði hann á 30. mínútu eftir stoðsendingu hins magnaða Leo Messi og sama uppskrift skilaði öðru marki tveimur mínútum síðar.











Ruben Rochina minnkaði muninn fyrir Levante í uppbótartíma en nær komust þeir ekki og lokatölur 2-1 sigur Barca.

Börsungar eru nú þremur stigum á eftir toppliði Real sem vann einnig þessa helgina en Levante er í 13. sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira