Sport

Í beinni í dag: Körfu­bolta­veisla, Roon­ey og golf

Anton Ingi Leifsson skrifar
Wayne Rooney verður á skjám landsmanna í kvöld.
Wayne Rooney verður á skjám landsmanna í kvöld. vísir/getty

Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag og kvöld en alls eru átta útsendingar á dagskránni í dag.

Evrópumótaröðin heldur áfram en leikið er í Sádi Arabíu þessa helgina. Tvær útsendingar verða frá mótinu; ein klukkan átta og ein hálf tólf.

Waste Management Phoenix Open mótið á PGA-mótaröðinni er svo á dagskránni klukkan átta.

Það hefst svo körfuboltaveisla klukkan 18.20 sem stendur fram yfir miðnætti. Grindavík og Fjölnir mætast sem og Stjarnan og Njarðvík.

Dominos-körfuboltakvöld hefur svo göngu sína eftir leikinn í Garðabænum og kvöldið endar svo á umræðu um 18. umferð Dominos-deildar kvenna.

Sýnt er svo frá föstudagsleiknum í ensku B-deildinni þar sem Derby og Stoke mætast. Wayne Rooney leikur sem kunnugt er með Rooney.

Allar beinu útsendingar næstu daga má finna á heimasíðu Stöðvar 2.

Beinar útsendingar dagsins:

08.00 Saudi International (Stöð 2 Golf)

11.30 Saudi International (Stöð 2 Golf)

18.20 Grindavík - Fjölnir (Stöð 2 Sport)

19.40 Derby - Stoke (Stöð 2 Sport 2)

20.00 Waste Management Phoenix Open (Stöð 2 Golf)

20.10 Stjarnan - Njarðvík (Stöð 2 Sport)

22.10 Dominos Körfuboltakvöld karla (Stöð 2 Sport)

23.40 Umræða um 18. umferð kvenna (Stöð 2 Sport)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×