Innlent

Hefðu byrjað rýmingar fyrir mörgum dögum ef varnargarðsins nyti ekki við á Flateyri

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Magnús EInar

Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segist afar þakklátur fyrir það að allir hafi komist óhultir frá snjóflóðunum sem féllu á Flateyri og Suðureyri seint í kvöld. Þá segir hann ljóst að ef varnarðgarðanna fyrir ofan Flateyri nyti ekki við hefðu rýmingar hafist á svæðinu fyrir allnokkru.

Alls féllu þrjú „mjög stór“ snjóflóð á Vestfjörðum undir miðnætti, líkt og það er orðað á vef Veðurstofu Íslands. Tvö við Flateyri, úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili, og eitt gegnt Suðureyri í Norðureyrarhlíð sem skapaði flóðbylgju sem fór inn í bæinn. Tjón hefur orðið á eignum en engin alvarleg slys á fólki svo vitað sé.

Gríðarmikið tjón varð í höfninni á Flateyri.Magnús einar

Guðmundur hefur verið í aðgerðastjórn síðan hún var virkjuð um miðnætti. „Sem bæjarstjóri er hugur manns fyrst og fremst hjá þessu viðbragðsfólki og þessari hetjudáð. Við hrósum happi yfir því að allir séu óhultir og heilir,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi nú á fjórða tímanum.

„Við erum ótrúlega þakklátt fyrir það hversu frábært fólk við eigum. Þau hafa unnið einhvers konar kraftaverk að koma þessu fólki til bjargar.“

Hann segir að nú sé verið að meta eignatjón á svæðinu, hvort hætta sé enn til staðar og hvort ástæða sé til rýmingar í fleiri byggðum. Þá er varðskipið Þór komið að Flateyri með um 35 björgunarsveitarmenn um borð auk þriggja lögreglumanna og læknis en getur ekki lagst að bryggju. Léttabátar hafa því verið sendir frá skipinu að landi með viðbragsaðila.

Skýringarmynd sem sýnir hvar snjóflóðin tvö féllu.Vísir/Jói K.

Varnargarðurinn sennilega forðað frá hættu

Á Suðureyri hefur fólk verið beðið um að halda sig frá höfninni en þar féll snjóflóð til móts við bæinn og orsakaði flóðbylgju, eins og áður segir. Guðmundur segir að þrjú íbúðarhús hafi verið rýmd í bænum með það fyrir augum að tryggja öryggi og vera ekki að taka áhættu að óþörfu.

Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra sagði í samtali við fréttastofu fyrr í kvöld að það liti út fyrir að snjóflóðin í kvöld séu á pari við það sem féll árið 1995. Tuttugu manns fórust í snjóflóðinu þann 26. október 1995 á Flateyri. Rögnvaldur sagði snjóflóðavarnargarðinn, sem reistur var eftir hamfarirnar, hafa sennilega bjargað miklu í kvöld.

Inntur eftir því hvort varnargarðurinn hafi staðið sig í stykkinu segir Guðmundur að hann telji að enginn hafi enn náð heildarsýn yfir flóðin enn sem komið er.

„En ég held að allir Vestfirðingar sem hérna búa, við vitum að ef ekki væri fyrir þá varnargarða sem hafa verið reistir þá hefðu fyrir mörgum dögum síðan verið hafnar rýmingar á svæðinu.“ Þarna hafi greinilega verið um stórt flóð að ræða og líklegt sé að varnargarðurinn hafi forðað fólki frá mikilli hættu.

„Þetta vekur upp sterkar tilfinningar og hjörtu okkar slá eins og í einum manni þegar svona gerist.“


Tengdar fréttir

Flóðbylgjan skall á húsum og bílum á Suðureyri

Snjóflóðið sem féll úr hlíðinni við Súgandafjörð til móts við Suðureyri féll i sjóinn og varð til þess að flóðbylgja skall á bænum. Nokkuð tjón varð á húsum og bílum. Vösk sveit björgunarsveitarmanna stendur vaktina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×