Viltu slá kúluna til Portúgal? Melrakkinn viðburðir 18. júlí 2020 10:01 Meistaramótið í betri bolta er hin íslenska undankeppni International Pairs sem fer fram í Portúgal 2021. Aðsend mynd „
Það sem er einstakt við þetta golfmót er það að allir geta tekið þátt. Eina skilyrðið er að vera orðinn átján ára og vera með löglega forgjöf,“ segir Árni Árnason skipuleggjandi Meistaramótsins í betri bolta. Forkeppni mótsins byrjaði 20. júní síðastliðinn og stendur hún yfir til 31.júlí. Mótið er eitt stærsta mót áhugamanna í golfi hér á landi og segist Árni finna fyrir miklum áhuga og spenning meðal kylfinga. „Það er alls ekki of seint að skrá sig þó að forkeppnin sé hafin en við hvetjum þó fólk til að skrá sig sem fyrst til að hafa möguleika á öllum vinningunum sem eru í boði í forkeppninni,“ segir Árni. Styrktaraðilar mótsins eru Bylgjan og Stella Artois léttöl en daglega eru dregnir út veglegir vinningar í forkeppninni. Keppendur geta meðal annars átt möguleika á því að vinna sér inn áskrift af Stöð 2, kassa af Stellu léttöl og golfhringi í Kiðjabergi svo eitthvað sé nefnt. 38 efstu kylfingarnir í forkeppninni tryggja sér þátttökurétt í lokamótinu í ágúst, ásamt gesti að eigin vali.Aðsend mynd Þetta er í fyrsta skipti sem mót með þessu sniði er haldið á Íslandi þar sem öllum kylfingum gefst kostur á að taka þátt, hvar sem þeir spila á landinu, óháð aldri og kyni. Forkeppnin er einstaklingskeppni og það eina sem þarft að gera er að skrá sig, borga þátttökugjald og skila inn þremur bestu punktaskorunum yfir þetta tímabil. Þetta gæti ekki verið einfaldara svo að það er engin afsökun fyrir því að skrá sig ekki. Í forkeppninni gilda öll skor á tímabilinu 20. júní til 31. júlí og geta kylfingar skráð skor aftur í tímann. 38 efstu kylfingarnir að loknu tímabilinu tryggja sér svo þátttökurétt í lokamótinu í ágúst, ásamt gesti að eigin vali. Þar spila tveir kylfingar saman í liði og telur betra punkta skor liðsins á hverri holu. Verðlaunin í lokamótinu eru svakaleg. Með því allra flottasta sem hefur sést. Sigurliðið vinnur sér inn ferð glæsilega ferð til Portúgal 2021 þar sem það verður fulltrúi fyrir Íslands hönd í lokamóti International Pairs, óopinberu heimsmeistaramóti í betri bolta með forgjöf. Allt uppihald er borgað fyrir keppendur svo að það er til mikils að vinna. Árni segir að leitun sé að glæsilegri aðalvinning í íslensku golfmóti og hvetur því alla sem kylfu geta valdið að slá til og vera með. Einnig bendir hann fólki á Facebook síðu mótsins þar sem hægt er að senda inn fyrirspurnir og fylgjast með gangi mála. Það er því um að gera að pússa kylfurnar, æfa sveifluna og spila fullt af golfi í sumar. Hver veit, þú gætir verið að leiðinni til Portúgal með þínum uppáhalds golffélaga. Fyrir áhugasama er hægt að skrá sig á mótið hér.
Golf Ferðalög Íþróttir Mest lesið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Lífið Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Fleiri fréttir Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira