Íslenski boltinn

Mark og stoð­sending frá Guð­jóni Pétri í Kópa­vogs­slagnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Pétur var heitur í dag.
Guðjón Pétur var heitur í dag. vísir/vilhelm

Breiðablik byrjar Pepsi Max-deild karla með sigur á bakinu en þeir unnu HK í Kópavogsslag, 3-1, er liðin mættust á Kópavogsvelli í dag.

Brynjólfur Willumsson skoraði fyrsta mark leiksins á fimmtu mínútu en stundarfjórðungi síðan var allt jafnt eftir að Ásgeir Marteinsson skoraði. 1-1 í leikhlé.

Guðjón Pétur Lýðsson skoraði annað mark Blika á 65. mínútu og þriðja markið gerði Kwame Quee eftir stoðsendingu Guðjóns.

Annar leikurinn í röð sem Kwame er á skotskónum.Breiðablik mætir Gróttu í fyrstu umferðinni um næstu helgi á heimavelli á meðan HK fær FH inn í Kórinn.

Markaskorarar eru fengnir frá fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×