Páll fékk stjörnuglýju í augu og steingleymdi tilmælum viðbragðsteymis þingsins Jakob Bjarnar skrifar 11. mars 2020 15:45 Páll Magnússon og Damon Albarn. Svo mjög þótti Páli til koma að hann steingleymdi öllum tilmælum frá viðbragðsteymi þingsins þar sem sérstaklega er farið fram á að þingmenn taki ekki á móti gestum vegna kórónuveirunnar.
Fjölmörgum í Alþingishúsinu er misboðið vegna virðingarleysis sem þeim þykir Páll Magnússon þingmaður hafa sýnt tilmælum viðbragðsteymis Alþingishússins. Eins og Páll hefur sjálfur greint frá fékk hann skemmtilega heimsókn á þingið í dag. Poppstjarnan Damon Albarn ásamt þeim Ingvari Þórðarsyni kvikmyndaframleiðanda og Jóni Kristni Snæhólm stjórmálafræðingi, snæddu með Páli í þinghúsinu og skoðuðu sig um. „Maður fær - sem betur fer - allskonar skemmtilegt fólk í heimsókn til sín í þingið. Heimsfrægar rokkstjörnur eru þó frekar sjaldséðir gestir, en Damon Albarn kom til mín í hádeginu og reyndist áhugasamari og fróðari um Ísland en margir aðrir sem ég þekki,“ segir Páll á Facebooksíðu sinni og birtir af sér mynd með popparanum heimsþekkta og lætur fylgja feitan broskall. Og víst er að mörgum þykir mikið til koma ef marka má athugasemdir. Mörgum misboðið vegna heimsóknarinnar En, ekki er öllum jafn skemmt. Og reyndar fáum á Alþingi. Vísir hefur heyrt í þingmönnum sem er hreinlega misboðið vegna þessarar heimsóknar. „Og ég veit að það varð bæði þingfólk og ekki síður starfsfólk, sem þarf að borða hádegismatinn sinn við skrifborðið sem var verulega misboðið að horfa upp á þetta,“ segir Helga Vala Helgadóttir þingmaður í samtali við Vísi. Það sem þingmönnum þykir skjóta skökku við er ekki það að Páll hafi fengið heimsókn frá hinum þekka tónlistarmanni heldur brýtur þetta í bága við tilmæli viðbragðsteymis þingsins sem gefið hefur út sérstök fyrirmæli vegna kórónuveirunnar. Biðlað hefur verið sérstaklega til þingmanna að þeir fái ekki gesti í þinghúsið meðan reynt er að ná tökum á útbreiðslu veirunnar og er það svo að starfsfólk Alþingis fær ekki einu sinni að borða í matsalnum. Eins og sjá má á bréfi sem sent var vegna stöðu mála og sjá má hér neðar í heild sinni: Ragna Árnadóttir er skrifstofustjóri Alþingis en Steingrímur J. Sigfússon forseti þess. Ekki er vitað hvort þau láti þessa óvæntu heimsókn popparans til sín taka.visir/vilhelm Tilmæli viðbragðsteymisins Sæl öll, Viðbragðsteymi Alþingis fundar daglega og fer yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til, hvernig þær reynast og hverra aðgerða sé þörf til viðbótar. Hér kemur yfirlit yfir það helsta: Samgöngur milli húsa og gestakomur Heimsóknir hópa í Alþingishús hafa verið lagðar niður í bili. Mælst hefur verið til þess að aðrar gestakomur í þinghúsið verði takmarkaðar eftir því sem kostur er. Áfram boða nefndir gesti á fundi en fjöldi gesta, sem mæta fyrir fund á sama tíma, takmarkaður. Þannig verði ekki boðaðir fulltrúar margra aðila á sama tíma og gestir beðnir um að senda ekki fleiri en tvo í einu á nefndarfund. Fundir í gegnum fjarfundabúnað (ýmist mynd- eða símafundur) verði nýttir eins og hægt er. Ekki verður tekið við heimsóknum í Skólaþing frá og með morgundeginum. Fundir Fundahöld starfsmanna verða í lágmarki og fjarfundabúnaður nýttur. Yfirstjórn skrifstofunnar og forstöðumenn munu til dæmis prófa að funda í gegnum Teams eftir hádegið. Þjónusta Markmiðið er að halda Alþingi starfhæfu og munu forstöðumenn kortleggja mönnun á einstökum starfseiningum og hvort ástæða sé til að grípa til aðgerða til að tryggja að hluti starfsmanna sé í smitskjóli. Vaktafyrirkomulagi hjá þingvörðum hefur verið breytt til að tryggja þjónustu og lágmarka smithættu. Mötuneytið Mötuneytið er áfram opið en allt gert til að tryggja hreinlæti og lágmarka smithættu. Frá og með morgundeginum verður skammtað í ílát. Starfsfólki verður skipt í minni hópa og hver hópur fer í mötuneytið samkvæmt tímaáætlun til að sækja bakkana og snæðir hver starfsmaður á sinni skrifstofu. Þingmenn hugi að því að sitja ekki of þétt í matsalnum. Það gildir þó í þessu eins og öðru, það er erfitt að koma með mjög nákvæmar leiðbeiningar, við sýnum skynsemi og tökum ábyrgð á okkar smitvörnum. Kær kveðja, Viðbragðsteymið (Ragna, Þorsteinn, Auður, Ólöf og Þorbjörg)
Alþingi Wuhan-veiran Tónlist Stjörnulífið Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira