Innlent

Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. vísir/einar

Ný löggæsluáætlun verður kynnt á sérstökum kynningarfundi í Dom Club-salnum á Hilton Reykjavík klukkan 10.30. Fundurinn verður í beinu streymi hér fyrir neðan.

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, leiddi stýrihóp sem að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipaði. Stýrihópurinn mótaði löggæsluáætlun fyrir árin 2027 til 2031 og mun Grímur kynna áætlunina.

Auk þeirra flytja stutt erindi þau Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í rannsóknardeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, og Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri Norðurlands eystra, um skipulagða glæpastarfsemi, vörnina sem hægt er að veita á landamærum og öryggi lögreglumanna.

Klippa frá fundinum í heild sinni er að finna hér fyrir neðan

Klippa: Löggæsluþing 2027



Fleiri fréttir

Sjá meira


×