Kallar eftir afdráttarlausu inngripi stjórnvalda vegna kórónuveirunnar Atli Ísleifsson skrifar 9. mars 2020 07:45 Sigmundur Davíð leggur áherslu á að við blasi heimskrísa og að efnahagsleg áhrif veirunnar kunni að verða meiri en í fjármálakrísunni fyrir rúmum áratug. Vísir/Vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að útbreiðsla kórónuveirunnar og áhrif hennar á íslenskt efnahagslíf og samfélag kalli á „afdráttarlaust inngrip stjórnvalda“. Þetta segir Sigmundur Davíð í grein sem birtist í Morgunblaðinu í morgun. Hann segir að stjórnvöld verði að grípa til aðgerða og ekki dugi lengur að „fela sig á bakvið sérfræðinga“. „Stjórnvöld eiga að sjálfsögðu að nýta ráð þeirra sem best þekkja til, leyfa stofnunum að rækja hlutverk sitt og byggja ákvarðanir á bestu fáanlegu upplýsingum. Við þær aðstæður sem nú hafa skapast þarf framlag ráðherra hins vegar að vera meira en að mæta sem áhorfendur á blaðamannafundi,“ segir hann í greininni. Alls hafa 58 manns nú greinst með kórónuveiruna hér á landi og þar af hafa tíu smitast innanlands. Öll smitin hérlendis tilheyra tveimur klösum, tengt ferðum Íslendinga til skíðasvæða í Austurríki og Ítalíu. Enginn er þó alvarlega veikur. Alls eru rúmlega fimm hundruð manns í sóttkví. Heimskrísa blasir við Sigmundur Davíð leggur áherslu á að við blasi heimskrísa og að efnahagsleg áhrif veirunnar kunni að verða meiri en í fjármálakrísunni fyrir rúmum áratug. Íslensk stjórnvöld séu þó í betri stöðu en önnur til að takast á við efnahagsleg skakkaföll og kallar vandinn nú á aðgerðir sem sniðnar séu að honum. „Ferðaþjónustan, stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar, lendir nú í verulegu áfalli í beinu framhaldi af öðrum skakkaföllum. Lítil og meðalstór fyrirtæki landsins hafa mörg verið sett í nauðvörn vegna síhækkandi skatta og annarra útgjalda, sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir loðnubresti og á nú á hættu að markaðsverð afurða lækki verulega, tekjur orkufyrirtækja munu dragast verulega saman ef hráefnaverð lækkar. Ekkert svið íslensks atvinnulífs mun fara varhluta af slíkri þróun,“ segir formaðurinn. Alls hafa 58 manns nú greinst með kórónuveiruna hér á landi og þar af hafa tíu smitast innanlands.Vísir/Vilhelm Sigmundur Davíð segir stöðuna nú kalla á afdráttarlaust inngrip stjórnvalda. Hann segir ljóst að það þurfi að lækka skatta á fyrirtæki og jafnvel veita þeim aukið svigrúm til skila á sköttum. Bankar þurfi að vinna með fyrirtækjum til að gera þeim kleift að standa í skilum „frekar en að yfirtaka þau“. Þá þurfi að leyfa fyrirtækjum að njóta góðs af þeim tryggingum sem þau hafa lagt inn fyrir til að lágmarka megi uppsagnir. Aukið svigrúm kerfisins Sigmundur Davíð kallar eftir að „kerfið“ sýni aukið svigrúm og sveigjanleika og hindranir verði ruddar úr vegi. „Hætta að eltast við menn eins og bóndann sem var að rækta silung til sjálfsþurftar í eigin tjörn. Leggja þess í stað áherslu á að þjónusta þá sem vilja framkvæma og framleiða. Ríkið mun þurfa að auka fjárfestingu í innviðum til að viðhalda fjárfestingu og atvinnustigi en á sama tíma þarf það að spara annars staðar, draga úr ímyndarpólitík og öðru prjáli,“ segir Sigmundur og bætir við að nú hljóti að vera komið að því að Íslendingar læri að meta mikilvægi íslensks landbúnaðar og ráðstafanir verði gerðar með það að markmiðið að verja eigin matvæla- og fæðuöryggi. Kallar hann þannig eftir að neyðarlög verði sett – sem fæli í sér fjárhagslegan stuðning og endurskoðun samninga – til að verja íslenskan landbúnað og innlenda matvælaframleiðslu. „Aðalatriðið er að ríkisstjórnin sýni viðbrögð sem eru í samræmi við umfang vandans og til þess fallin að takast á við hann,“ segir formaður Miðflokksins.
Miðflokkurinn Wuhan-veiran Tengdar fréttir Enginn veikur um borð í fyrsta skemmtiferðaskipi ársins Von er á fyrsta skemmtiferðaskipi ársins til Reykjavíkur í fyrramálið. Það er farþegaskipið Magellan sem tekur tæplega fimmtán hundruð farþega. 9. mars 2020 01:04 Enginn veikur um borð í fyrsta skemmtiferðaskipi ársins Von er á fyrsta skemmtiferðaskipi ársins til Reykjavíkur í fyrramálið. Það er farþegaskipið Magellan sem tekur tæplega fimmtán hundruð farþega. 9. mars 2020 01:04 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Fleiri fréttir Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Sjá meira
Enginn veikur um borð í fyrsta skemmtiferðaskipi ársins Von er á fyrsta skemmtiferðaskipi ársins til Reykjavíkur í fyrramálið. Það er farþegaskipið Magellan sem tekur tæplega fimmtán hundruð farþega. 9. mars 2020 01:04
Enginn veikur um borð í fyrsta skemmtiferðaskipi ársins Von er á fyrsta skemmtiferðaskipi ársins til Reykjavíkur í fyrramálið. Það er farþegaskipið Magellan sem tekur tæplega fimmtán hundruð farþega. 9. mars 2020 01:04