Innlent

Dæmdur fyrir hóta sýslumanni lífláti

Frá Eskifirði
Frá Eskifirði

Karlmaður var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir brot gegn valdstjórninni en hann hótaði sýslumanninum á Eskifirði lífláti. Hann sagðist meðal annars ætla að nota tvo grimma hunda til verksins. Fyrir dómi kom fram að manninum hafi verið í nöp við sýslumanninn vegna tveggja atvika sem á undan höfðu gengið. Maðurinn var undir áhrifum áfengis þegar hann hringdi í sýslumanninn en dómari komst að þeirri niðurstöðu að hugsanleg áfengisáhrif gætu ekki afsakað verknaðinn.

Sýslumaðurinn greindi frá því að þriðjudaginn 10. október 2006 um klukkan 19 hafi karlmaður hringt á heimili hennar og tilkynnt henni að hann hyggðist láta drepa hana. Hafi hún slitið símtalinu. Stuttu síðar hafi sami maður hringt aftur og endurtekið ummæli sín og sagst myndu nota tvo hunda til verksins. „Hafi hún spurt manninn til nafns en hann hafi neitað að gefa það upp. Hafi hún innt eftir tilefni hótunarinnar og hafi maðurinn þá sagt að hún ætti að vita hvað um væri að ræða og færi hún út af þessu „krummaskuði" sem hún byggi á þá yrði hún drepin. Hafi hún þá lagt símtækið til hliðar og gert ráðstafanir til að símtalið yrði rakið," að því er fram kemur í dómsorði.

Manninum var í nöp við sýslumanninn vegna embættisverka hennar, en hann sakaði hana um að hafa ekki brugðist við með viðunandi hætti þegar hann og félagi hans urðu fyrir aðkasti annars manns þegar ákærði bjó á Neskaupsstað. Áreitið hafi staðið yfir í níu ár og maðurinn sagði sýslumann ekkert hafa gert í málinu þrátt fyrir tilraunir þeirra til að kæra.

Kornið sem fyllti mælinn virðist hins vegar hafa verið atvik sem átti sér stað í mötuneyti í bænum. Ákærði hafi þá „misst disk í vegg sem hafi brotnað og flís úr disknum farið í höfuð stúlku sem þar hafi verið nærri," eins og sagt er í dómnum. Sýslumaður hafi þá ákveðið að kæra manninn fyrir líkamsáras, sem hann var síðar sýknaður af fyrir dómi. Hann var hins vegar sakfelldur fyrir að valda fólki hættu með því að kasta diskum í vegginn. Hæstiréttur vísaði þeirri ákæru síðar frá dómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×