Reiði í Brasilíu eftir að fótboltalið gerði samning við leikmann myrti kærustuna sína Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. mars 2017 23:46 Bruno Fernandes de Souza vísir/afp
Mikillar reiði gætir nú í Brasilíu eftir að knattspyrnulið sem spilar í 2. deild þar í landi gerði tveggja ára samning við leikmann sem myrti kærustuna sína, Elizu Samudio, árið 2010. Maðurinn, Bruno Fernandes de Souza, var dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir morðið árið 2013. Hann losnaði hins vegar úr fangelsi í síðasta mánuði og í kjölfarið samdi hann við liðið Boa Esporte en Bruno, eins og hann er þekktur í Brasilíu spilar stöðu markvarðar.Bæði fjölskylda konunnar sem hann myrti og hópar sem berjast gegn kynbundnu ofbeldi mótmæltu því að Bruno væri boðinn velkominn aftur í heim knattspyrnunnar með svo afgerandi hætti. „Konur eru mjög reiðar sem og almenningur. Það er eins og hann hafi ekki hlotið dóm,“ skrifaði Djamila Ribeiro, vel þekktur stjórnmálaheimspekingur og femínisti í Brasilíu. Þrjú fyrirtæki drógu stuðning sinn við Boa Esporte til baka eftir að liðið samdi við Bruno en margir fótboltaáhugamenn í landinu hafa hins vegar fagnað endurkomu hans á knattspyrnuvöllinn. Málið kemur upp á tíma þar sem vaxandi áhyggjur eru af kvennamorðum og nauðgunum í Brasilíu. Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna í liðinni viku vakti knattspyrnuliðið Cruzeiro einmitt athygli á þessu og voru leikmenn liðsins í treyjum með alls kyns tölfræði um kynbundið ofbeldi, meðal annars skilaboðum á borð við „Ein nauðgun á hverjum ellefu mínútum.“
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira