Hundruð þúsunda mótmæla 13. október 2005 15:02
Hundruð þúsunda mótmæla enn kosningasvikum í Úkraínu. Þing landsins kom saman til neyðarfundar í dag til að ræða vandann, og mótmælendurnir óttast aðgerðir öryggissveita. Tugir þúsunda stuðningsmanna stjórnarandstöðuframbjóðandans Viktors Yuschenkos létu frostkalda nóttina ekki stöðva sig og héldu áfram mótmælum á aðaltorginu í Kænugarði. Þegar leið á daginn fjölgaði í hópnum og á annað hundrað þúsund manns gengu fylktu liði að þinghúsinu þar sem þingmenn sátu á neyðarfundi. Þeir ræddu þar umdeild úrslit kosninga, mótmæli almennings og viðbrögð Vesturlanda, en talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins hnykkti á afstöðu þarlendra stjórnvalda í gærkvöldi. Hann sagði að Úkraínumenn væru hvattir til að reka af sér slyðruorðið og sína svo ekki verði um villst að lýðræði sé í hávegum haft í landinu. Þingmenn lýstu áhyggjur af ástandinu en þingið hefur ekki vald til að hafa nein áhrif á kosningarnar. Mótmæli fóru einnig fram í öðrum borgum í landinu. Rússar hafa hins vegar lýst yfir stuðningi við forsætisráðherra landsins og sigurvegara forsetakosninganna samkvæmt niðurstöðum kjörnefndar: Viktor Yanukovich. Ríkisfjölmiðlar hafa í dag borið á hann lof og fagnað meintum sigri hans, en þeir hafa verið gagnrýndir fyrir að ganga erinda Yanukovish í kosningabaráttunni. Fréttaskýrendur segja átök frambjóðendanna og stuðningsmanna þeirra um leið átök tveggja þjóðfélagshópa: Annars vegar iðnaðarsvæða í rússneskumælandi austurhluta landsins, þar sem stuðningur við Yanukovich er mikill, og hins vegar vesturhlutans, þar sem þjóðernissinnar eru í meirihluta, en þeir styðja Yuschencko.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Sjá meira